Fréttir

27.7.2010

Agi...

Jæja, þú hafðir það af að lesa meira en bara fyrirsögnina. Það eru margir sem hafa lítinn áhuga á aga. Sérstaklega þegar Guð á í hlut. Fæstum finnst gott að þurfa að láta aga sig en flestir, ef ekki allir foreldrar geta þó játað að agi sé bæði nauðsynlegur og uppbyggjandi sem honum beitt rétt. Þannig læra flest börn hvað sé gott að gera og hverju beri að forðast. Biblían segir svo líka að að Guð agar þá sem hann elska (Heb.12.6) enda vill hann einmitt að við lærum það sem er gott og rétt. Hann vill leiðbeina okkur og kenna okkur að ganga rétta veginn. Við þurfum svo að taka við því.
Síðast liðinn sunnudag fengum við að heyra vitnisburði frá fólki sem þráði að segja frá því sem Guð hefur verið að gera í fyrir það. Þar kom margt spennandi fram sem vert er að hlusta á. Síðan talaði gylfi Markússon til okkar og er upptakan frá samkomunni komin inn á netið.
Á fimmtudaginn (29. júlí nk.) hefst svo árlegt mót Hvítasunnumanna sem í ár verður haldið í Stykkishólmi (nánari upplýsingar á www.kotmot.123.is). Samkomuhald hér í Kirkjulækjarkoti mun því færast í Hólminn þessa helgi og eru allir sem hafa tök á hvattir til að kíkja á mótið þar. Dagskrá mótsins er komin inn á vefsíðu Kotmóts. Næsta hefðbundna samkoma í Kirkjulækjarkoti verður bænastund fimmtudaginn 5. ágúst nk.

Skrifað 27.7.2010 kl. 11:33 af Katrínu

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

9.7.2010

Hvað er öfugt við elsku?

Hvað er andheiti við elsku og kærleika? Hatur já, en hvað með sjálfselsku eða sjálfhverfu? Hve oft erum við upptekin af okkur sjálf þegar við ættum að hugsa um aðra? Jesús er fyrirmynd okkar um kærleika og í Biblíunni eru kristnir hvattir til að vera "eftirbreytendur Krists". Það er örugglega erfitt ef maður er upptekinn af sjálfum sér.

Sue Ólafsson talaði til okkar síðast liðinn sunnudag. Hún kom víða við en nefndi meðal annars þetta með að við eigum að líkjast Kristi. Besta leiðin til þess er að ganga til liðs við Jesú, leyfa honum að komast að. Við erum ekkert annað en gruggug jökulá í sjálfum okkur. Það mætti líkja okkur Hvítá. Jesús er tær sem Sogið. Þegar Hvítá og Sogið renna saman verður Ölfusáin til en það er ein kraftmesta á landsins. Þannig er það líka með þá sem eru tilbúnir til að ganga til liðs við Jesú. Með honum í liði fáum við kraft sem er sterkari en nokkuð annað sem til er. Spurningin er bara hvort við erum til. Ert þú til? Ræða Sue liggur inni á upptökusíðunni. Ef þú átt 20 mínútur aflögu, þá eru þær vel varðar í að hlusta á þessa skemmtilegu ræðu.


Fyrir þá sem eru að velta fyrir sér hvað eigi að gera um verslunarmannahelgina má benda á þessa síðu: kotmot.123.is. Þar eru allar upplýsingar um mót Hvítasunnumanna (Kotmót).

Skrifað 9.7.2010 kl. 15:05 af Katrínu

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

2.7.2010

Sunnudagssamkoma 4.7.10.

Á sunnudagssamkomu fáum við gestpredikara, Sue Ólafsson.

Skrifað 2.7.2010 kl. 13:37 af Jarek

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

20.6.2010

Ljónið í brunninum

Það er oft þannig að mest ógnvekjandi stundir lífs okkar verða þær sem við síðar tölum um sem þær mest spennandi. Benaja nokkur, hraustmenni og frægur fyrir afreksverkin sín, lenti einu sinni í þeirri aðstöðu að stíga ofan í brunn. Það var nú kannski ekki merkilegt nema fyrir það að þar var einnig ljón. Eflaust hefur það verið skelfileg upplifun að lenda í þessu. Það var eflaust nokkuð ljóst að aðeins annað þeirra myndi lifa af. Svo fór að hraustmennið drap ljónið og fyrir vikið breyttist atvikið til góðs fyrir Benaja. Þessi saga hefur án efa verið sögð á kvöldstundum seinna í lífi Benaja vegna þess að hann ákvað að gera eitthvað í málinu og sigraði.
Við lendum stundum í kringumstæður sem virðast álíka hræðilegar og að hitta ljón í brunni á snjóadegi. Það virðist kannski sem öll von sé úti en það með Guðs hjálp getum við breytt kringumstæðurnar. Biblían hvetur okkur til að leita Guðs með áætlanir okkar og þá munum við líka sjá árangur af þeim (Orðskv. 16.3,
Mike nokkur og fríður hópur frá Bandaríkjunum komu og þjónuðu til okkar á samkomunni í dag. Mike talaði einmitt um Benaja (2. Sam. 23.20 fyrir þá sem vilja lesa meira) og hvernig ómögulegar kringumstæður geta breyst til góðs þegar við göngum til liðs við Guð. Það er samt okkar að taka fyrsta skrefið.
Eiginkona Mikes, Cindy, söng fyrir okkur en það gerði einnig ungur maður að nafni Will. Svo fengum við að heyra í væntanlegum trúboða en Craig, sem kom með hópnum, hefur mikið hjarta fyrir Íslandi og því aldrei að vita hvort við eigum eftir að hitta hann aftur. Við fengum að heyra vitnisburð um það hvernig Guð getur breytt ömurlegar kringumstæður í eitthvað gott og það fór ekki milli mála að hér var Guðsfólk á ferð. Nærvera Guðs var yndisleg á samkomunni! Upptakan er komin inn á upptökusíðuna. Njótið vel!
Bænastund verður í kirkjunni á fimmtudaginn kl. 20 og síðan verður samkoma næsta sunnudag kl. 14. Allir eru hjartanlega velkomnir!

Skrifað 20.6.2010 kl. 15:49 af Katrínu

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

13.6.2010

Lyklar og smurning

Það var talað um dyr á samkomunni í dag. - Og lyklar og smurningu. Lyklar og smurning geta opnað dyr - og það bæði í andlegum og veraldlegum skilningi. Ef við erum með réttu lyklana er tiltölulega auðvelt að opna dyr. Ef hurðin er stíf, þá má kannski bjarga málinu með smá smurningu. Þannig er það líka á göngunni með Guði. Hann gefur okkur lykla til að opna dyr með (dyr inn í nýjar aðstæður, ný verkefni og nýja hluti) og smurningin kemur frá Heilögum anda en með slíkri smurningu verður allt margfalt auðveldara og skemmtilegra. Það er gríðarlega mikilvægt fyrir okkur að sækjast eftir smurningu Heilags anda og gjöfunum sem hann gefur okkur.
Aron Hinriksson fjallaði um þetta í predikun sinni á samkomunni í dag (ef þú misstir af henni, þá skaltu taka þér tíma til að hlusta á ræðuna á upptökusíðunni. Hún er í léttum dúr og höfðar til allra). Hann hvatti líka til þess að gefa sér tíma til að hlusta á Guð. Guð vill tala við okkur og eiga samfélag við okkur en það er aðeins hægt ef við gefur okkur tíma til að hlusta á hann. Í ræðu Arons eru einmitt fjórir lyklar til að æfa sig í að hlusta á Guð.
Eiginkona Arons, Gunnhildur Stella Pálmarsdóttir, var svo með vitnisburð, þar sem hún sagði frá því hvernig Guðs hefur breytt ýmsu í lífi hennar. Guð vill umbreyta okkur frá dýrð til dýrðar og Gunna sagði frá því hvernig hann hafði gert það í hennar lífi. Hún sagði einnig frá því hvernig 12 spora fundir geta hjálpað til við að taka til í bakpoka lífsins á skipulagðan hátt en við höfum öll gengið í gegnum ýmislegt á lífsgöngunni og alltaf hollt að láta Guð hjálpa til við tiltektina.
Aron og Gunna eru forstöðuhjón í Hvítasunnukirkjunni á Selfossi en hægt er að fræðast meira um starfið þar á selfossgospel.is. Upptakan frá samkomunni í dag er komin inn á upptökusíðuna og hvetjum við alla til að gefa sér tíma til að hlusta á hana.

Skrifað 13.6.2010 kl. 16:37 af Katrínu

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

6.6.2010

Royal Rangers-samkoma

Royal Rangers réð ferðinni á samkomu hjá okkur í dag. Fjórir aðilar voru með vitnisburð en þeir fóru nýlega til Noregs á mót sem Royal Rangers stóð fyrir. Þar fengu þeir að læra ýmislegt sem tengist sem nýtist vel í leik og starfi fyrir Royal Rangers hér á landi. Ljóst var að þeir höfðu upplifað margt og mikið og fróðlegt var að heyra í þeim. Síðan sagði Þröstur Freyr Sigfússon, landsforingi, frá því hvernig Royal Rangers hafði byrjað á Íslandi. Það er saga út af fyrir sig og má hlusta á hana og vitnisburðina á upptökusíðunni. Njótið vel!

Skrifað 6.6.2010 kl. 16:00 af Katrínu

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

5.6.2010

Ótitlað

Síðasta sunnudag var samkoma í anda fjölskyldusamkomanna sem hafa verið á þriðjudögum í vetur. Hópur barna sem hafa tekið þátt í fjölskyldusamkomunum í vor sungu og spiluðu og síðan var kennsla sem höfðaði bæði til yngri og eldri samkomugesta. Þar með eru fjölskyldusamkomurnar komnar í sumarfrí. Sunnudagssamkomurnar og bænastundirnar kl. 20 á fimmtudögum munu þó halda áfram í allt sumar. Á morgun verður til dæmis samkoma kl. 14 í kirkjunni í Kotinu og allir eru hjartanlega velkomnir!

Skrifað 5.6.2010 kl. 14:03 af Katrínu

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 108
Gestir í dag: 30
Flettingar í gær: 253
Gestir í gær: 59
Samtals flettingar: 170039
Samtals gestir: 28152
Tölur uppfærðar: 29.7.2010 14:40:34

Þér hlið, lyftið höfðum yðar, hefjið yður, þér öldnu dyr, að konungur dýrðarinnar megi inn ganga.
Hver er þessi konungur dýrðarinnar? Drottinn hersveitanna, hann er konungur dýrðarinnar.
 
Sálmur 24 : 9 - 10

Hvítasunnukirkjan Kirkjulækjarkoti
861 Hvolsvöllur

Vefstjórar: Jarek Dudziak og Katrín M. Eiríksdóttir

Netfang vegna heimasíðu: katrinme (hjá) gmail.com