Fermetrarí fóstur 2011

Örkin í Kirkjulækjarkoti
Fermetrar í fóstur 2011
Kæru vinir
Söfnunin fyrir Örkina "Fermetrar í fóstur" stendur yfir.
Nú er komið nýtt söfnunarnúmer.

kt. 490884-0419
banki  301         Hb   26          reikn. 1897

Guðfinna Helgadóttir er gjaldkeri Arkarinnar

Margir tóku fermetra í fóstur og eru búnir að borga þá. Nú langar okkur að biðja ykkur um að taka nýja fermetra í fóstur, svo að við getur lokið við Örkina, sem Guð gaf okkur öllum.
Við þurfum við að gera betur ef við eigum að geta haft Kotmót í Örkinni.
Okkur vantar ennþá ca. 1.700.000 kr. .
Miklar kröfur eru um bætt öryggi, sem við verðum að gera. Þetta kostar allt mikla peninga, en öll vinna er unnin í sjálfboðavinnu.

Öryggið er fyrir okkur öll og börnin okkar.

Í Kotinu eru núna góðir gestir, sem komu.
 til að vinna í Örkinni í tvær vikur.
Þetta eru Pathfinders frá Bandaríkjunum. Með þeim vinna núna nokkrir íslendingar, bæði að smíða og elda mat fyrir hópinn.
Drottinn blessi alla sem vinna og gefa til Arkarinnar.
Upp hefur komið sú hugmynd að hafa basar á Kotmóti.
Allir sem prjóna, hekla,baka eða gera eitthvað í höndunum, eru hvattir til að gefa á markaðinn.
Símanúmer mitt er   487-7827   og   898- 7827.

Kær kveðja,
Rebekka Jónasdóttir



Fermetrar í fóstur

Í dag laugardag 4. júní  2011,var vinnudagur í Örkinni, eins og verið hefur undanfarið.
Hópur duglegra manna og kvenna unnu í allan dag.
Það er frábært að sjá kvað Guð er að gera í Örkinni núna.
Við hvetjum alla til að kynna sér hvenær eru vinnuhelgar. Koma svo í Kotið og taka þátt.


Frá því að við Yngvi byrjuðum með söfnunina,
Fermetrar í fóstur árið 2008, hafa safnast kr.14.000.000.
Takk Drottinn fyrir það.

Við Yngvi höfum aldrei haft, og viljum ekki hafa prókuru fyrir peningunum.
Við höfum eingöngu skoðunaraðgang að reikningunum, til að fylgjast með hvað mikið kemur inn.

Hver króna sem hefur safnast, hefur farið í Örkina.
Ekkert hefur verið tekið af þessum peningum.Við vorum svo heppin að vera með sér reikning á Hvolsvelli,sem engin annar hafði aðgang að,en gjaldkerar, sem voru Jóhannes og Sissú.
Kær kveðja,
Rebekka Jónasdóttir




 Kæru vinir

Nú erum við Yngvi byrjuð að safna aftur.

Fermetrar í fóstur.

Söfnunin sem Guð gaf okkur öllum.

Nú er búið að gera það mikið í Örkinni, að fermetrinn kostar núna kr. 10.000.
Það er hægt að taka 1,   2,   eða    3    fermetra eða meira og gefa kvaða upphæð sem er.
Hægt er að borga frá  kr.1.000 á mánuði.
 Okkur vantar ca. 2.000.000 til að geta klárað allt sem yfirvöld fara fram á, til að halda Kotmót.

Ný stjórn Arkarinnar hefur hafið störf. Þar eru ungir kröftugir menn að störfum undir forustu Böðvars Inga.
Vinnuhelgar verða í allt sumar fram að Kotmóti. Það vantar verkamenn og konur, smiði, kokka og fl. hafið samband við Styrmi Hafliðason.Netfang: styrmirh@gmail.com

Guðfinna Helgadóttir hefur tekið við sem gjaldkeri söfnunarinnar.
Nýtt reikningsnúmer er:

kt.490884-0419
301-26-1897

Tökum höndum saman og vinnum verkið sem Guð ætlar okkur,að ljúka við Örkina.Gefum í söfnunina og vinnum líka með höndum okkar.
Drottinn blessi ykkur.
Kær kveðja,
Rebekka Jónasdóttir




                                      

Hér í Kirkjulækjarkoti erum við með stóra samkomuhöll sem kallast Örkin. Á þessari síðu verður fjallað sérstaklega um Örkina.

Kotmót

   Handverksmarkaðurinn gekk vel á Kotmóti. Takk kæru vinir,þið sem gáfuð handverksmuni á markaðinn. Drottinn blessi ykkur ríkulega. Við seldum fyrir kr. 184.469 á markaðinum.
   Það er smávegis eftir af munum, sem við ætlum að reyna að selja smám saman fyrir jól t.d. í kaffistofunni eftir samkomur í Kotinu. Flestir þurfa að kaupa jólagjafir og þá er gott að styrkja Örkina um leið.

   Í fermetra í fóstur kom inn staðgreitt kr.477.500. Frábært! Drottinn er góður. Sumir tóku líka fermetra í fóstur og borga mánaðarlega, þá upphæð sem þeim hentar. Guð blessi ykkur ríkulega.
Fólk er líka að gefa aftur, taka aftur fermetra í fóstur. Það er mikil þörf, því við þurfum að ljúka við Örkina. Nú eru strangar eldvarnarreglur og fleira ,sem við verðum að mæta. Þetta þarf allt að gera og vera í lagi fyrir næsta Kotmót. Byrjum strax í Jesú nafni.

                  Kærar kveðjur,

                Rebekka Jónasdóttir
        Sími 487-7827      898-7827

        



  


Kæru vinir

   Kant þú að prjóna, hekla, sauma,mála,sauma bútasaum ,steikja kleinur,baka flatkökur eða gera annað handverk.
   Þegar ég var að biðja fyrir Örkinni,gaf Guð mér þessa hugmynd. Hafa handverksmarkað á Kotmóti til styrktar Örkinni, sem svo sárlega vantar peninga til að halda verkinu áfram.

   Vilt þú vera með og tala við aðra sem þú þekkir. Við erum þakklát fyrir allt. Húfur, vettlinga, sokka teppi, myndir bara allt. Ef til vill átt þú eitthvað tilbúið heima, sem þú vilt gefa.

   Drottinn blessi ykkur og Drottirnn blessi verkið í Örkinni.
Viljið þið biðja fyrir söfnuninni.

             Kærar kveðjur.
       Rebekka Jónasdóttir
    Sími 487-7827 og  898-7827
  
  

  



Örkin okkar
                                  
Fermetrar í fóstur

Börnin mín, viljið þið ljúka við húsið mitt

Kæru vinir.

Á síðastliðnu ári kallaði Guð okkur, Rebekku og Yngva, í söfnun fyrir Örkinni í Kirkjulækjarkoti Fljótshlíð. Hann sagði við okkur, takið þið fermetra í fóstur og börnin mín, viljið þið ljúka við húsið mitt.

Við fórum af stað í mars 2008 og heimsóttum flestar Hvítasunnukirkjur landsins. Söfnunin gekk vel og einnig safnaðist mikið á Kotmóti. Við lögðum upp með að fólk tæki 3 fermetra í fóstur og gæfi kr. 50.000. Fólk gat líka gefið hvaða upphæð sem það vildi. Hæsta upphæðin kom frá óþekktum gefanda kr. 4.000.000. Alls hefur komið inn á reikninginn rúmlega kr.11. 000.000. Við þökkum ykkur öllum sem hafa gefið í söfnunina fyrir Örkina. Drottinn blessi ykkur ríkulega.

Örkin sjálf var reist og klædd að utan fyrir ca. 15 árum. Þar höfum við haldið Kotmótin okkar öll þessi ár í eins konar skemmu sem eiginlega var aðeins hægt að nota á sumrin. Veggirnir í litla salnum voru klæddir fyrir nokkrum árum og salurinn málaður. Loftið var eftir. Heilmikið hafði verið gert í kjallaranum.

Vorið 2008 þegar peningar byrjuðu að streyma inn á reikninginn, var hafist handa við framkvæmdir, sjálfboðaliða hópar komu, loftið í litla salnum var klætt með plötum, ljós sett upp og nýr pallur smíðaður við austurvegginn. Allt er þetta mjög látlaust og fallegt. Núna þarf að setja upp eldvörn í þakið, leggja síðan teppi, sem við keyptum í fyrra, á gólfið. Við fengum menn í launaða vinnu síðastliðið sumar. Þeir settu einangrun í loftið í miðrýminu og luku við það. Vinnulyftu keyptum við til þessa verks og fleiri verka, sem eftir eru.

Allt sumarið í fyrra komu margir sjálfboðaliðar að vinna hérna. Settar voru upp tröppur við suðurhlið Arkarinnar. Tvennar dyr eru á þeirri hlið. Fyrir Kotmót voru neyðardyr settar á vesturhlið Arkarinnar.

Í vor var Kvennamót í Kotinu og gátum við þá gengið upp vestari tröppurnar, beint inn í litla salinn. Það var yndislegt að vera með samkomur mótsins í Örkinni. Ég held að við höfum allar notið okkar vel og Andi Guðs var sterkur yfir mótinu.

Í desember komu Mike og Sheila með góðan hóp Bandaríkjmanna. Þeir voru hér í tæpa viku og klæddu veggina í stóra salnum með einangrun, plasti og plötum, ca 3 metra upp. Sheila var kokkur og hélt þeim síðan íslenska jólaveislu, lambalæri og allt með.

Byggingayfirvöld kröfðust fullkominna teikninga af Örkinni. Fyrirtækið Mannvit tók að sér verkið og kosta teikningarnar 4.000.000. Við höfum nú þegar greitt á aðra milljón inn á reikninginn, en eigum inni á bankareikningi fyrir því sem eftir er og greiðum eftir því sem reikningar berast. Þar með er fé söfnunarinnar uppurið.

Eins og þegar hefur komið fram er verkinu við Örkina ekki lokið. Síðstliðið haust reið yfir heimsbyggðina og þar með Ísland mikil efnahagskreppa. Hún er ekki yfirstaðin og botninum líklega ekki náð. Margir spádómar hafa komið frá Guði um Örkina. Rödd Guðs er ekki þögnuð. Börnin mín viljið þið ljúka við húsið mitt.

Einn fermetri kostar kr. 17.000. Tölum við Drottinn um hvað Hann vill gera í lífi okkar. Það er mikil blessun að gefa til Guðs ríkis. Við hefðum mátt vera duglegri við það í góðærinu.

Reikningsnúmerið er: 0182 - 26 - 918

Kennitala: 520384 - 0499


Gjaldkeri söfnunarinnar er Sigþrúður Tómasdóttir.

Framkvæmdarstjórn Arkarinnar skipa: Jóhannes Hinriksson,  Kristján Fr. Kristjánsson og Hjörtur Markússon.

Um söfnunina sjá Yngvi Guðnason og Rebekka, símar 487 7827 og 8987 827
Netfang: yngre@simnet.is.

Jóhannes og Sigþrúður, sími 770 3710
Netfang: nth75@live.is


1, 2 , eða 3 fermetra má greiða á eins mörgum mánuðum og þú vilt.

Einnig eru allar gjafir vel þegnar, hvað smáar sem þær eru. ( Guð margfaldar þær. )


Kærar kveðjur,
Rebekka Jónasdóttir

Flettingar í dag: 98
Gestir í dag: 32
Flettingar í gær: 380
Gestir í gær: 82
Samtals flettingar: 341443
Samtals gestir: 64545
Tölur uppfærðar: 20.5.2012 14:22:50

Þér hlið, lyftið höfðum yðar, hefjið yður, þér öldnu dyr, að konungur dýrðarinnar megi inn ganga.
Hver er þessi konungur dýrðarinnar? Drottinn hersveitanna, hann er konungur dýrðarinnar.
 
Sálmur 24 : 9 - 10

Hvítasunnukirkjan Kirkjulækjarkoti
861 Hvolsvöllur

Vefstjórar: Jarek Dudziak og Katrín M. Eiríksdóttir

Netfang vegna heimasíðu: katrinme (hjá) gmail.com