Gestabók
11.5.2010 kl. 16:10
Gospel Blús um Hvítasunnuna
Komiði sæl systkini
Mig langaði til að segja ykkur frá því að um Hvítasunnuhelgina verður haldin blúshátíð í Rangárþingi undir nafninu Norden Blues Festival.
Okkur í Blússveit Þollýar hefur verið boðið að taka þátt en við spilum gospel blús þar sem allir lagatextar eru á trúarlegum nótum. Við munum spila á eftirfarandi stöðum og tímum:
Föstudaginn 21. maí frá miðnætti til kl. 01.00 í Hellubíó
Laugardaginn 22. maí kl. 20.00 - 21.00 á Hótel Hvolsvelli
Sunnudaginn 23. maí kl. 20.00 - 21.00 á Árhúsum Hellu og síðan frá kl. 22.00 - 22.30 í Hellubíó
Það er bæn okkar að Andi Guðs fái að starfa í gegnum tónlistarflutning okkar og að Guð mætti draga þá einstaklinga sem hann þráir að mæta til að hlusta á okkur. Ég vildi láta ykkur vita af þessu og hvetja ykkur til þess að bjóða ófrelsuðum vinum ykkar á þessu viðburði - ennfremur væri gaman að sjá kunnugleg andlit kíkja við :)
Kær kveðja,
Þollý Rósmunds
Þollý Rósmunds
27.6.2009 kl. 14:00
Sumarmót
Sæl verið þið! Við söknum þess að hafa ykkur ekki hér á Sumarmóti:) kíkið endilega á myndir á síðunni, kv.
Anna Sigga
6.4.2009 kl. 23:08
Takk fyrir samveruna um helgina,frábæra kennslu, vitnisburði, mat og göngutúr. Vonandi hittumst við fljótlega aftur.
Katrín Birna
5.4.2009 kl. 22:53
Hingað er gott að koma
Kæru vinir.
Alltaf jafn uppbyggilegt að heimsækja síðuna ykkar.Kotið er og verður blessun fyrir þjóðina.
Guð blessi ykkur
Helena
Helena Leifs.
11.3.2009 kl. 22:33
Takk innilega fyrir yndislegt samfélag í gær!!
Guð er góður!
Kærleikskveðjur frá Höfn
Matta
25.2.2009 kl. 13:28
Vááá!! Uppörvandi heimasíða .... mikið eruð þið dugleg að færa inn það sem Guð er að gera!! Guð blessi ykkur elsku vinir!! Ég bið förðurinn um að fylla ykkur af enn meiri krafti og eldi sínum:)
Hvolsvöllur fyrir Jesú!
AMEN!
Kv. Hvsk Lifandi Vatn á Höfn
Matta
16.11.2008 kl. 15:10
jáhá
það var kominn tæimi til að ég kíkti í heimsókn hér á vefnum bið að heilsa árni vinur
árni hill
30.9.2008 kl. 5:06
Kveðja frá Jónasi
Það var gaman að skoða heima síðunna..Hef aldrei farið inn á hana komst ekki inn á hana þó ég skrifaði www.kotið.is..Guð blessi okkur Kveðja Jónas...
Jónas Yngvason
1.8.2008 kl. 13:47
Drottinn blessi ykkur
Kæru trúsystkini.
Ég trúi að þið eigið og munuð eiga dásamlega helgi.
Endilega biðji fyrir trúsystkinum ykkar á hjara veraldar sem eru ekki hjá ykkur núna.
Drottinn blessi ykkur og varðveiti
Kær kveðja/Rósa
Rósa Aðalsteinsdóttir
11.6.2008 kl. 17:30
Stella G.K.
18.5.2008 kl. 23:36
Gaman að sjá síðuna núna!Það er svo gott að geta fylgst með sínu fólki svona þegar vorverkin eiga hun manns allan og við hjónin í bænda leik!
Herdís
28.3.2008 kl. 14:52
I was in Iceland living at your church in 2000 with Teen Missions Int'l. I spent time working on your conference centre and with the big camp/conference you hold in the summer. I was so blessed to be part of your welcoming church during that time! You showed our team such hospitality. Iceland will always hold a very special place in my heart, and I hope to visit again one day. May God bless you as you continue to serve him and love others so unselfishly.
Natalie
6.3.2008 kl. 17:36
Jesús elskar ykkur
Sæl kæru trúsystkini.
Fögur er slétta hjá fögru hlíðinni hans Gunnars á Hlíðarenda. Dásamlegur staður. ég tók á móti Jesú í Kirkjulækjarkoti 1972 og tók skírn um haustið í Kirkjulækjarkotin að sjálfsögðu. Guðni Markússon skírði mig og voru fullt af afasonum hans sem tóku skírn ásamt Fríðu frá Miðskála.Við erum með heimasíðu: http://www123.is/hvitasunnukirkja/. Astrid sér um síðuna. Endilega kíkið á síðuna og það er einnig hægt að fara inná síðuna í gegnum gospel.is Þið þurfið að biðja Jón Þór að tengja síðuna ykkar við gospel.is
Guð er góður.
Shalom
Rósa Aðalsteinsdóttir
4.3.2008 kl. 1:06
Til hamingju með kotid.is
Til hamingju með nýju Kotsíðuna, glæsilegt framtak!
Kærar þakkir fyrir samveruna og góðar stundir á nýliðnu og frábæru móti sl. helgi í Kotinu.
Guð blessi ykkur!
Kær kveðja // Guðni Þorbjörnsson
Guðni Þorbjörnsson
1.3.2008 kl. 0:50
Til hamíngju
Hæ,hæ til hamíngju með síðuna.Ég mun fylgjast með hér örðu hverju en svo ætlar ég að bruna austur þegar tíðin fer að verða betri.
Jósef S Gunnarsson
25.2.2008 kl. 19:58
gegjjjjjað flott áfram kotið hehe
verið svo enn duglegri að koma á samkomu í sveitina það er sko þess virði elsku systkinni
megi okkar yndislegi faðir marg blessa ykkur og fjölskyldu
ykkar
sigga og chito
25.2.2008 kl. 10:46
Til hamingju
Gaman að sjá þetta framtak og ég á eftir að fara inn á síðuna ykkar oft í framtíðinni.
Guð blessi ykkur og gefi framgang í starfinu.
Jón Þór Eyjólfsson
24.2.2008 kl. 20:59
Ég var nr. 3
Kæru systkin í Jesú Kristi.
Mikið er ég glöð að þið eruð komið með heimasíðu. Vona að þið verðið mögnuð eins og Aron og Gunna. Það er nú samt ekkert auðvelt að komast með tærnar þar sem þau eru með hælana.
Við erum með heimasíðu sem Astrid sér um:http://www.123.is/hvitasunnukirkja/ Shalom
Rósa Aðalsteinsdottir
9.12.2007 kl. 0:26
ég var no 2
út af því áð ég var no 2 þá dettur mér í hug einn frasi úr enskunni "the first looser is the seccond place" þannig er nú það til hamingju með allt saman kveðjur árni Hill
árni hill
4.12.2007 kl. 22:48
Velkomin á vefinn
Til hamingju með netvæðinguna kæru vinir, Kv. Aron og Gunna
Aron Hinriksson
