Fréttir

13.6.2010

Lyklar og smurning

Það var talað um dyr á samkomunni í dag. - Og lyklar og smurningu. Lyklar og smurning geta opnað dyr - og það bæði í andlegum og veraldlegum skilningi. Ef við erum með réttu lyklana er tiltölulega auðvelt að opna dyr. Ef hurðin er stíf, þá má kannski bjarga málinu með smá smurningu. Þannig er það líka á göngunni með Guði. Hann gefur okkur lykla til að opna dyr með (dyr inn í nýjar aðstæður, ný verkefni og nýja hluti) og smurningin kemur frá Heilögum anda en með slíkri smurningu verður allt margfalt auðveldara og skemmtilegra. Það er gríðarlega mikilvægt fyrir okkur að sækjast eftir smurningu Heilags anda og gjöfunum sem hann gefur okkur.
Aron Hinriksson fjallaði um þetta í predikun sinni á samkomunni í dag (ef þú misstir af henni, þá skaltu taka þér tíma til að hlusta á ræðuna á upptökusíðunni. Hún er í léttum dúr og höfðar til allra). Hann hvatti líka til þess að gefa sér tíma til að hlusta á Guð. Guð vill tala við okkur og eiga samfélag við okkur en það er aðeins hægt ef við gefur okkur tíma til að hlusta á hann. Í ræðu Arons eru einmitt fjórir lyklar til að æfa sig í að hlusta á Guð.
Eiginkona Arons, Gunnhildur Stella Pálmarsdóttir, var svo með vitnisburð, þar sem hún sagði frá því hvernig Guðs hefur breytt ýmsu í lífi hennar. Guð vill umbreyta okkur frá dýrð til dýrðar og Gunna sagði frá því hvernig hann hafði gert það í hennar lífi. Hún sagði einnig frá því hvernig 12 spora fundir geta hjálpað til við að taka til í bakpoka lífsins á skipulagðan hátt en við höfum öll gengið í gegnum ýmislegt á lífsgöngunni og alltaf hollt að láta Guð hjálpa til við tiltektina.
Aron og Gunna eru forstöðuhjón í Hvítasunnukirkjunni á Selfossi en hægt er að fræðast meira um starfið þar á selfossgospel.is. Upptakan frá samkomunni í dag er komin inn á upptökusíðuna og hvetjum við alla til að gefa sér tíma til að hlusta á hana.

Skrifað 13.6.2010 kl. 16:37 af Katrínu

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit
Til baka

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 175
Gestir í dag: 55
Flettingar í gær: 218
Gestir í gær: 52
Samtals flettingar: 182190
Samtals gestir: 30095
Tölur uppfærðar: 5.9.2010 21:56:26

Þér hlið, lyftið höfðum yðar, hefjið yður, þér öldnu dyr, að konungur dýrðarinnar megi inn ganga.
Hver er þessi konungur dýrðarinnar? Drottinn hersveitanna, hann er konungur dýrðarinnar.
 
Sálmur 24 : 9 - 10

Hvítasunnukirkjan Kirkjulækjarkoti
861 Hvolsvöllur

Vefstjórar: Jarek Dudziak og Katrín M. Eiríksdóttir

Netfang vegna heimasíðu: katrinme (hjá) gmail.com