Færslur: 2010 Maí

16.05.2010 17:15

Blessunardaggir

Það voru svo sannarlega blessunardaggir sem rigndu yfir Kirkjulækjarkoti fyrr í dag. Eftir öskufallið var allt orðið grátt en á nokkrum mínútum með hellirigningu var aftur kominn litur á náttúruna og húsin. Hvað hafa margir vonast eftir slíkri rigningu?
Á samkomunni í dag komu góðir gestir í heimsókn. Það voru þeir Árni Þór Þórðarson og Þorgils Gunnarsson. Guð blessaði okkur ekki bara með rigningu í dag heldur með hvatningarorðum líka. Þorgils var með vitnisburð um það hvernig Guð svarar bænum beðnar í trú. Árni hvatti okkur til að leita vilja Guðs með köllun okkur og gera köllun okkar vissa (sjá 2.Pét.1.10). Hann hvatti okkur líka til að taka okkur tíma með Guði, leita vilja hans, biðja og fasta. Þjóðin hefur þurft að ganga gegnum margt undanfarin ár. Bankahrun og nú líka náttúruhamfarir. Við þráum væntanlega öll að Guð snerti við þjóðina og landinu okkar og breytir hlutum til góðs. Leiðin er gegnum Guð: "Biðjið og yður mun gefast" segir í Biblíunni (Lúk. 11.9, Matt. 7.7). Ef við biðjum, þá mun Guð gefa svar. Maríanna Másdóttir las einmitt þetta vers í heild sinni á samkomunni og börnin eru að læra þetta á fjölskyldusamkomum um þessar mundir. Það er því ekki tilviljun og Guð vilji hvetja okkur til þessa.
Það má svo líka nefna að gestirnir okkar báðu einmitt Guð að gefa rigningu hér þegar þeir voru á leiðinni hingað austur... Hver segir svo að Guð svari ekki bænum: "Biðjið og yður mun gefast."
Ræðan og vitnisburðurinn liggja á upptökusíðunni. Guð blessi þig þegar þú hlustar á upptökuna!

09.05.2010 16:13

Komum til Guðs

Það er nauðsynlegt að gefa sér tíma til að vera með Guði. Það er stundum erfitt þegar margt annað togar í okkur líka. Stundum finnst okkur meira að segja við vera ekki nógu verðug til að koma fram fyrir Guði. Það gerist oft þegar við höfum gert eitthvað sem við vitum að Guð er ekkert sérlega hrifinn af. Pétur, postulinn sem afneitaði Jesú þrisvar sinnum áður en Jesús var krossfestur, fékk annað tækifæri (Jóh.21.15-17). Hann fékk tækifæri til að játast Kristi á ný. Pétur var sá sem síðar átti eftir að prédika fyrir lýðnum og sjá marga komast til trúar á Drottinn. Hann var mannlegur eins og þú og ég, fær um að gera mistök.
Maður nokkur sagði einu sinni: Sá sem á mörg leyndarmál er mjög einmana. Þannig verður það oft með syndina. Þegar við hyljum hana, þá er hún byrði. Ef við komum til Jesú með syndir okkar og fáum fyrirgefingu þá getum við öðlast frelsið sem Pétur fékk þegar hann fékk annað tækifæri hjá Jesú.
Persónulegt samband við Guð er gríðarlega mikilvægt og afskaplega dýrmætt. Hjá Guði er kærleikur, frelsi og friður fyrir alla menn. Jesús gaf okkur boðorð: Að við elskum hvern annan eins og hann hefur elskað okkur. Jesús elskar okkur og hvetur okkur til að sýna öðrum þennan kærleika líka. Biblían segir að sá sem elskar Guð er sá sem heldur boðorð Guðs. Guð hefur gefið okkur Heilagan anda til að lifa í okkur og hjálpa okkur að vinna verk Guðs. Heilagur andi er sá sem hvetur okkur, huggar okkur og vinnur kraftaverk gegnum okkur (fyrir Heilögum anda predikaði Pétur á torginu nokkrum vikum eftir upprisu Jesú. Það fór ekki milli mála hver predikaði gegnum Pétur þann daginn, sjá 1. og 2. kafla í Postulasögunni). Már Guðnason sagði okkur frá þessu í dag og hvatti okkur til að ganga alla leið með Guði. Allt vald er börnum Guðs gefið og það er því okkar að nota það. Jesús notaði valdið í kærleika og það er nákvæmlega það sem við þurfum að gera líka. Fáum Heilagan anda með okkur og þá gerast kraftaverkin. Ekki horfa smáum augum á sjálfa(n) þig. Okkur finnst við stundum vera eins og Davíð sem er að fara að glíma við Golíat. Golíat er vissulega stór en Davíð er stærri. Sá sem var í Davíð var sjálfur Guð og þarf þá að spyrja hver er stærri í raun? Þegar Guð er með þér, hver getur þá verið á móti þér? Guð keypti þig með því að gefa það allra dýrmætasta sem hann átti: Hans eigin son. Það var ekkert annað sem var nógu verðmætt til að geta greitt fyrir líf þitt. Þetta er verðgildi þitt séð með augum Guðs: Þú ert jafnverðmæt(ur) og Jesús Kristur. Biddu Guð að sýna þér hvað hann sér þegar hann horfir á þig. Það mun koma þér gleðilega á óvart!
Hægt er að hlusta á upptökur af samkomum á upptökusíðunni. Þar má einnig finna ræðu Más.

01.05.2010 20:58

Vorið er komið og sumarið nálgast óðum. Forsmekkinn fengu margir að sjá í dag en Guð blessaði okkur með yndislegt veður hér á svæðinu. Vonandi hafa flestir getað notið veðurblíðunnar. Á morgun er svo aftur samkoma kl. 14 og vonandi fær Guð að blessa okkur þar líka. Hallgrímur Guðmannsson frá Selfossi ætlar að tala á samkomunni. Margir þekkja hann eflaust enda hefur hann gengið með Drottni um langt skeið. Allir eru hjartanlega velkomnir á samkomuna.
  • 1
Flettingar í dag: 96
Gestir í dag: 31
Flettingar í gær: 380
Gestir í gær: 82
Samtals flettingar: 341441
Samtals gestir: 64544
Tölur uppfærðar: 20.5.2012 13:40:17

Þér hlið, lyftið höfðum yðar, hefjið yður, þér öldnu dyr, að konungur dýrðarinnar megi inn ganga.
Hver er þessi konungur dýrðarinnar? Drottinn hersveitanna, hann er konungur dýrðarinnar.
 
Sálmur 24 : 9 - 10

Hvítasunnukirkjan Kirkjulækjarkoti
861 Hvolsvöllur

Vefstjórar: Jarek Dudziak og Katrín M. Eiríksdóttir

Netfang vegna heimasíðu: katrinme (hjá) gmail.com