Fréttir
25.4.2010
Kvennamót og hetjur Guðs
Um helgina var haldið Kvennamót í Skálanum í Kirkjulækjarkoti. Þetta er árlegur viðburður og á sunnudeginum er samkoman hér í Kotinu tileinkaður þessu móti. Á samkomunni voru vitnisburðir kvenna sem höfðu verið á mótinu og mátti heyra að Guð hafði greinilega talað til hjartna þeirra sem gáfu sér tíma til að fara á mótið. Þröstur Sigfússon endaði svo á því að predika um konur sem hetjur í Biblíunni. Upptakan frá samkomunni er komin inn á síðuna.
Minnum svo á fjölskyldusamkomu á þriðjudaginn kl. 18. Næstkomandi fimmtudag verður aukaaðalfundur kl. 19.00 hér í kirkjunni. Skráðir safnaðarmeðlimir eru hvattir til að mæta.

21.4.2010
Sumardagurinn fyrsti
Sumarið er í nánd og við ætlum að fagna því á morgun með bænagöngu. Eins og undanfarin ár verður efnt til bænagöngu á Hvolsvelli. Þetta er orðin hefð en bænagöngur verða á 30 stöðum á landinu þennan dag og fær hver gönguhópur ákveðið bænarefni til að biðja sérstaklega fyrir. Til stendur að hittast hjá Vininni, Ormsvelli kl. 9.00 og ganga hring um þorpið. Áætlaður göngutími er 90 mínútur og er hringurinn um það bil 4 km. Hvetjum alla til að taka þátt í bænagöngunni! Þetta er þverkirkjulegt framtak og það er alveg sama hvaða kirkjudeild þú tilheyrir, þú ert meira en velkomin(n) að taka þátt! Til að lesa meira um þetta verkefni má fara inn á heimasíðu Lindarinnar eða smella hér.
18.4.2010
Leitum Guðs af öllu hjarta
Það var kannski ekki fullt út úr dyrum á samkomunni í dag en það var boðskapur og hvatning frá Guði handa þeim sem vildu hlusta. Guð var að hvetja okkur til að leita hans af öllu hjarta, leita hans í sannleika og gefa okkur tíma til að hlusta á það sem hann vill segja við okkur. Már predikaði í dag og var einmitt að tala um þetta. Lofgjörðin var yndisleg og full af þakklæti til Jesús. Þakklæti fyrir það hver hann er og fyrir það sem hann er megnugur að gera. Guð er hæli okkar og styrkur, örugg hjálp í nauðum (Sálmur 46.2). Hann er bjarg okkar og vígi (Sálmur 18.3) og elskar okkur með ævarandi elsku (Jeremía 31.3). Það er eitthvað til að vera þakklátur fyrir! Hann hefur gefið okkur heilagan anda sem er hjálpari og huggari (Jóhannesarguðspjall 14.26).
Það er mikilvægt fyrir okkur að gefa okkur tíma til að hlusta á það sem Guð vill segja við okkur. Hann vill gefa okkur hugmyndir, benda okkur á þegar við lesum í Biblíunni og hann vill verja tíma með okkur og leyfa okkur að finna hvað hann þykir vænt um okkur. En við verðum að gefa okkur tíma. Hann hefur meira að segja lofað okkur að þegar við leitum hans af öllu hjarta, þá munum við finna hann! (Jeremía 29.13-14). Það er mikilvægt að halda fast í loforðin sem Guð gefur!
Upptakan frá samkomunni í dag er komin á netið. Gefðu þér tíma til að hlusta á hana og leyfðu Guði tala til þín. Munum svo líka að biðja fyrir því fólki sem hafa orðið fyrir áhrifum af gosinu (ekki síst bændum og þeim aðstæðum sem þeir eru í). Biðjum Guð um vernd og blessun því til handa.

17.4.2010
Samkomur í Kotinu
Á morgun er aftur komin sunnudagur og þá verður, að öllu óbreyttu, samkoma í kirkjunni kl. 14.00. Flestir hafa eflaust tekið eftir því að það gýs enn í Eyjafjallajökli. Vegna þessa hefur lögreglan þurft að takmarka umferð inn í Fljótshlíð. Þeir sem hyggjast koma á samkomu eru beðnir að kynna sér upplýsingar um umferð inn á svæðið áður en lagt er af stað, virða þær takmarkanir sem kunna að vera í gildi og fara að tilmælum lögreglu og björgunarsveita.
Biðjum svo Guð að vernda og blessa fólki á áhrifasvæði gossins. Bændur og búfénaður þurfa á vernd og styrk að halda á þessari stundu. En Guð er góður og þess megnugur að gera stórkostlega hluti þrátt fyrir erfiðar kringumstæður! Guð blessi þig sem lest þetta.

11.4.2010
Finndu rétta stefnu
Hvert stefnir þú? Veistu hvar þú ert? Ef við vitum ekki hvar við erum, hvernig eigum við þá að vita hvert við ætlum að fara?
Til að rata í náttúrunni þurfum við áttavita eða GPS tæki og kort. Áttavitinn er gagnslaus án kortsins og GPSinn getur sagt okkur hvar við erum en við verðum þá að vita hvert við ætlum að fara.
Samkoman í dag einkenndist af orðum Guðs um að byggja upp, áminna og hugga. Orð Guðs, Biblían, sem er innblásið af Guði (sbr. 2. Tímóteusarbréf, 3. kafla, 15.-17. vers). Guð getur sagt okkur hvar við erum og hvert við stefnum. Við getum lesið um það í Biblíunni. Orðið á að byggja okkur upp, áminna okkur og hugga en við verðum að leyfa því að gerast. Ekki er hægt að vita hvað stendur í Biblíunni nema lesa það sem í henni stendur. Orðið hefur kraftinn til að breyta og bæta. Guð vill uppörva, hugga og byggja okkur upp. Hann vill breyta okkur frá dýrð til dýrðar (2.Kor.3.18 - taktu eftir, við, börn Guðs, erum þegar dýrðleg en hann við gera okkur enn dýrðlegri).
Paulo Sicoli, trúboðinn okkar frá Brasilíu, talaði um Biblíuna ídag. Hann sagði okkur frá því að það tók 1500 ár að skrifa Biblíuna. Það tók næstum því 2000 ár í viðbót að fá hana hingað til Íslands í því broti sem hún er í dag. Það er engin tilviljun með þessa bók. Hún mun breyta lífi þínu til hins betra ef þú gefur þér tíma til að lesa það sem í henni stendur. Ef þú vilt vita hvert þú átt að fara, fáðu þá visku Guðs úr Biblíunni.

8.4.2010
Ræður
Minnum á að þeir sem hafa áhuga á að hlusta á upptökur frá samkomum um páskana geta farið á upptökusíðuna og valið sér andlega máltíð. Jóhannes, Jarek og Gylfi predikuðu en einnig voru vitnisburðir og ýmislegt fleira.
Kl. 20 í kvöld er bænastund að venju. Þá kemur bænafólk saman til að knýa á fyrir landi og þjóð en einnig verður beðið fyrir öðrum bænarefnum. Það er bæði gott og gefandi að hittast til að biðja og við vitum það nú þegar að Guð svarar bænum (hann lofar það meira að segja í Biblíunni). Hann svarar ekki alltaf eins og við hefðum hugsað okkur en við getum treyst því að Guð veit hvað er okkur fyrir bestu. Eins og oft hefur verið minnst á hér á síðunni, þá hefur Guð aðeins góða áætlun fyrir líf okkar. Biðjum við hann um að leysa hana út, þá getum við verið fullviss um það góðir hlutir eru framundan. Guð blessi þig!!

Flettingar í dag: 164
Gestir í dag: 48
Flettingar í gær: 218
Gestir í gær: 52
Samtals flettingar: 182179
Samtals gestir: 30088
Tölur uppfærðar: 5.9.2010 21:28:40