Fréttir

30.3.2010

Samkomur um páskana

Nú styttist óðum í páskahelgina. Við ætlum að sjálfsögðu að fagna þessa hátíð og það gerum við meðal annars með því að halda samkomur. Um páskana verða samkomur sem hér segir:

Skírdagur: Brauðsbrotning kl. 20
Föstudagurinn langi: Samkoma kl. 14
Páskadagur: Hátíðarsamkoma kl. 14


Næsta fjölskyldusamkoma verður þriðjudaginn 13. apríl nk.

Síðast liðin helgi fór hópur héðan úr kirkjunni austur á Höfn í Hornafirði. Þar var kennsla og samkomur og var þemað að heyra röddu Guðs. Jarek Dudziak sá um kennsluna en hinir í hópnum þjónuðu einnig á mismunandi hátt. Hápunkturinn var líklega samvera á laugardagskvöldi þar sem fjallað var um spádómsgjöfina. Allir fengu tækifæri til að prófa að nota þessa gjöf og var einstaklega spennandi að fá spádómsorð inn í líf sitt. Guð talaði til allra sem voru mættir. Yndislegt var að eiga samverustundir með systkinum okkar á Höfn. Þar ríkir bæði mikill kærleikur og gleði og það var mjög uppörvandi að fá að njóta helgarinnar með þeim. Guð blessi systkini okkar á Höfn!

Skrifað 30.3.2010 kl. 19:37 af Katrínu

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

26.3.2010

Samkoma í Kotinu

Þá reynum við aftur :). Síðasta sunnudag varð að breyta samkomustaðnum vegna eldgosins í Eyjafjallajökli og því var ekki hefðbundin samkoma í kirkjunni. Í staðinn hittust nokkrir kotarar og voru með samverustund í kirkjunni á sama tíma og samkoma var haldin í heimahúsi á Hvolsvelli. Á sunnudaginn stefnum við að því að hafa hefðbundna samkomu kl. 14 í kirkjunni í Kirkjulækjarkoti. Hinrik Þorsteinsson mun tala en hann er nýlega kominn heim frá Búrkína Fasó. Allir eru velkomnir.
Þessa helgi fer hópur úr kirkjunni austur á Höfn til að heimsækja hvítasunnukirkjuna Lifandi Vatn. Jarek Dudziak mun kenna og samverustundir verða með systkinum okkar þar. Biðjum Guð að blessa og varðveita alla þessa helgi, hvar svo sem þeir verða á landinu.

Skrifað 26.3.2010 kl. 15:04 af Katrínu

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

21.3.2010

Samkoma í dag

"Því þótt fjöllin færist úr stað og hálsarnir riði skal mín miskunsemi við þig ekki færast úr stað og minn friðarsáttmáli ekki raskast, - segir miskunnari þinn, Drottinn."   Jesaja 54.10

Já, þótt Eyjafjallajökull ætli að gera vart við sig núna þá er Drottinn ekki hættur að miskunna sig yfir okkur. Hann er verður lofgjörðar og því ætlum við ekki að sleppa samkomu. Hins vegar verður samkoman með heldur breyttu sniði en venjulega. Stefnt er að því að hittast í heimahúsum í staðinn og lofa Drottin þar. Hægt er að fá frekari upplýsingar hjá Jarek Dudziak.

Skrifað 21.3.2010 kl. 10:24 af Katrínu

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

6.3.2010

Komum saman í húsi Guðs

Halelúja. Lofið Guð í helgidómi hans, lofið hann í voldugri festingu hans!
Lofið hann fyrir máttarverk hans, lofið hann eftir mikilleik hátignar hans!
Lofið hann með lúðurhljómi, lofið hann með hörpu og gígju!
Lofið hann með bumbum og gleðidansi, lofið hann með strengleik og hjarðpípum!
Lofið hann með hljómandi skálabumbum, lofið hann með hvellum skálabumbum!
Allt sem andardrátt hefir lofi Drottin! Halelúja!   (Sálmur 150)

Á morgun er aftur tækifæri til að koma saman og lofa Drottin í húsi hans. Það er mikil leyndardómur fólginn í því að lofa Guð. Það er svo yndislegt að gera það þegar maður er glaður og fagnar yfir einhverju en það er ennþá meiri kraftur í að lofa Guð þegar maður gengur gegnum erfiðleika. Það þarf svo heldur ekki að spara lofgjörðina þar til í kirkjunni á sunnudögum. Það má lofa Guð heima hjá sér, í bílnum, í vinnunni, já hvar sem er. Gott er að setja góðan lofgjörðardisk á spilarann og taka svo bara þátt í lofgjörðinni (það má syngja, dansa, spila á hljóðfæri, mála, liggja, hoppa...). Svo er líka hægt að hlusta á Lindina, kristilegu útvarpsstöðina sem útvarpar allan sólarhringinn og heyrist víða um land (og sem á 15 ára afmæli um þessar mundir - lindin.is).
Fyrir þá sem vilja koma á samkomu, þá hefst hún kl. 14. Allir velkomnir eins og venjulega!

Skrifað 6.3.2010 kl. 21:29 af Katrínu

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 164
Gestir í dag: 48
Flettingar í gær: 218
Gestir í gær: 52
Samtals flettingar: 182179
Samtals gestir: 30088
Tölur uppfærðar: 5.9.2010 21:28:40

Þér hlið, lyftið höfðum yðar, hefjið yður, þér öldnu dyr, að konungur dýrðarinnar megi inn ganga.
Hver er þessi konungur dýrðarinnar? Drottinn hersveitanna, hann er konungur dýrðarinnar.
 
Sálmur 24 : 9 - 10

Hvítasunnukirkjan Kirkjulækjarkoti
861 Hvolsvöllur

Vefstjórar: Jarek Dudziak og Katrín M. Eiríksdóttir

Netfang vegna heimasíðu: katrinme (hjá) gmail.com