Færslur: 2010 Febrúar
28.02.2010 18:26
Gjafir Guðs
Hefur þú hugsað um hæfileika þína nýverið? Hvaða gjafir hefur Guð gefið þér? Við höfum öll fengið hæfileika frá Guði og hugmyndin er að við notum þessa hæfileika. Ef þú ert ekki viss um þína köllun, þá er ráð að biðja Guð að sýna þér hvað hann skapaði þig til að vera. Guð talar um gjafir sínar í Biblíunni og í ræðu dagsins var kennsla um nákvæmlega þetta efni.
Nemendur og starfsfólk frá MCI biblíuskólanum komu í heimsókn í dag og þjónuðu með vitnisburðum, ræðu og söng. Tveir nemendur sögðu frá því hvernig Guð hafði snúið lífum þeirra til góðs og var magnað að heyra hvað Guð er fær um að gera. Lofgjörðin var yndisleg en auk hennar söng hún Eva Margrét Ólafsdóttir einsöng fyrir samkomugesti. Bjarki Guðsson biblíuskólanemandi talaði svo til okkar um gjafir Guðs. Ræðan og vitnisburðirnir eru komnir inn á síðuna (ásamt ræðum frá fyrri samkomum í febrúar) og geta þeir sem misstu af - eða vilja hlusta aftur - kíkt inn á upptökusíðuna.
Minnum svo á stund fyrir karla á þriðjudaginn. Nánari upplýsingar hjá Jóhannesi. - Hver fer að vera síðastur til að skrá sig því gert er ráð fyrir að menn snæði saman kvöldverð... (ætti ekki að koma á óvart...)

Skrifað af Katrínu
27.02.2010 16:06
Heimsókn frá MCI
Það er yfirleitt alltaf gaman að fá gesti. Á morgun verður samkoma kl. 14 eins og venjulega á sunnudögum, nema í þetta sinn munu gestir gegna miklu hlutverki á samkomunni. Nemendur úr MCI biblíuskólanum í Reykjavík munu koma og þjóna á samkomunni og verður spennandi að sjá hvað þeir hafa að deila með okkur. MCI er stytting á Masters Commision Iceland og er þetta sjöundi veturinn sem skólinn er starfræktur. Þeir sem hafa áhuga á að kynna sér starfsemi skólans enn frekar geta skoðað heimasíðu MCI: mci.is. Svo er um að gera að kíkja á samkomu á morgun til að sjá og heyra hvað gestirnir okkar vilja segja og sýna okkur. Allir eru hjartanlega velkomnir!
Í fyrra fór Þorsteinn J., sjónvarpsmaður m.m. og Vera Sölvadóttir ásamt fleirum með þeim Hinriki og Gullýju til Búrkína Fasó í Afríku. Þau gerðu heimildarmynd um ferðina og því starfi sem Hinrik og Gullý eru að sinna þar. Þessi heimildarmynd er til sýningar á heimasíðu Þorsteins J, thorsteinnj.is þessa dagana. Hvetjum alla sem ekki hafa þegar séð myndina til að horfa á hana. Hún er mjög merkileg og fær mann til að hugsa svolítið um heiminn sem við búum í.

25.02.2010 18:55
Þetta er allt að koma
Það er alltaf gott að vita að fólk fylgist með hér á síðunni. Nú fer líka að styttast í að meira efni fari að birtast hér. Þegar þetta er skrifað er unnið hörðum höndum að því að vinna upptökurnar frá samkomunum og koma þeim hingað inn á síðuna (ein ræða er þegar komin). Þó svo að þetta sé allt gert í tölvu, þá er ekki þar með sagt að þetta bjargist allt á svipstundu og því eruð þið beðnir velvirðingar á að þetta taki allt tíma.
Engin röskun er á hefðbundnu kirkjustarfi hér og því verður bænastund hér í kirkjunni í kvöld kl. 20 eins og venjulega á fimmtudögum. Á sunnudaginn verður samkoma kl. 14 og eru allir hjartanlega velkomnir að koma.
Í lok mars stendur til að fara í heimsókn á Höfn og hitta trúsystkini okkar í hvítasunnukirkjunni þar. Þeir sem hafa áhuga á að koma geta leitað til Jareks eftir frekari upplýsingar.

21.02.2010 20:47
Margir hafa eflaust tekið eftir að lítið hefur verið um uppfærslur á kotid.is í þessum mánuði. Það orsakast af tölvuvandamálum undirritaðra en nú styttist heldur í að ástandið líði hjá. Beðist er velvirðingar á þessu.
Í dag sunnudag talaði Tómas Ibsen til okkar á samkomunni. Hann hvatti okkur til að forðast baktal og að gera upp gamlar syndir því mikil lausn felst í fyrirgefningu.
Á þriðjudaginn er fjölskyldusamkoma kl. 18-19. Þar verður fjör fyrir alla fjölskylduna þó að kennslan sé miðuð við yngri kirkjugesti. Undanfarið hafa börnin verið að læra um að Jesús er alltaf tilbúinn að taka á móti okkur, ekki síst börnunum. "Leyfið börnunum að koma til mín, varnið þeim eigi því slíkra er Guðs ríki" segir í Markúsi 10.14. Nú styttist svo óðum í að menn fái nýtt minnisvers til að læra. Hvaða vers skyldi það vera...?

03.02.2010 16:38
Brauðsbrotning
Síðast liðinn sunnudag var góður gestur, Daníel Steingrímsson guðfræðingur, í heimsókn hjá okkur og talaði hann til okkar um náð Guðs. Ræðan var að venju tekin upp og er hún hún væntanleg á netið innan skamms.
Á þriðjudögum kl. 18 eru fjölskyldusamkomur í kirkjunni. Þar er áherslan lögð á kennslu fyrir börnin en foreldrar eru samt hvattir til að koma með. Lofgjörðin er í höndum krakkanna sem sjá um að leiða söng og leika á hljóðfæri. Í gær var haldið áfram að fjalla um minnisversið sem að þessu sinni er tekið úr Markúsi 10. kafla og 14. vers: "Leyfið börnunum að koma til mín, varnið þeim eigi, því slíkra er Guðs ríki." Börnin eru að æfa sig í að fletta upp í Biblíunni og í gær var verkefnið að finna þetta vers. Svo verður spennandi að sjá hvert framhaldið verður.
Næstkomandi fimmtudag (annað kvöld) verður brauðsbrotning enda fyrsti fimmtudagur mánaðarins. Stundin hefst kl. 20.00.

- 1
Flettingar í dag: 93
Gestir í dag: 30
Flettingar í gær: 380
Gestir í gær: 82
Samtals flettingar: 341438
Samtals gestir: 64543
Tölur uppfærðar: 20.5.2012 13:18:25