Fréttir
23.1.2010
Bænavika að ljúka
Þá fer að líða að því að bænavikan okkar ljúki. Tvær bænastundir hafa verið daglega í vikunni, önnur á Hvolsvelli en hin í Kirkjulækjarkoti og hafa margir séð sig fært að taka þátt. Við munum halda áfram að hittast á fimmtudagskvöldum kl. 20 í kirkjunni í Kirkjulækjarkoti til að biðja.
Á morgun er samkoma eins og venjulega á sunnudögum. Hún hefst kl. 14 og að þessu sinni er það Már Guðnason sem mun tala. Minnum einnig á að hægt er að nálgast upptökur af ræðum á samkomum í kirkjunni með því að smella á Upptökur hér að ofan. Þar má meðal annars finna ræður þeirra Hinriks Þorsteinssonar og Guðnýjar Jónasdóttur frá því á sunnudaginn var.

19.1.2010
Ég hef augu mín til fjallanna:
Hvaðan kemur mér hjálp?
Hjálp mín kemur frá Drottni,
skapara himins og jarðar. (Sálm. 121.1)
Í þessari viku er bænavika hjá okkur í Kirkjulækjarkoti. Beðið er í heimahúsi á Hvolsvelli kl. 18 og í kirkjunni í Kirkjulækjarkoti kl. 20 öll kvöld fram á laugardag. Við vitum að Guð svarar bænum þegar við biðjum hann (sjá Matt. 7.7-11) og þess vegna tökum við tíma frá til að biðja. - Það er nóg að biðja fyrir (sjá álit sem var skrifað við færslu þann 17. jan. sl.)! Þrá okkar er meðal annars að sjá þjóðina leysta undan þeim erfiðleikum sem hún glímir við þessa stundina. Erfiðleikar virðast stundum vera óyfirstíganlegir en við vitum hvaðan hjálpin kemur! "Sjá, hönd Drottins er eigi svo stutt að hann geti ekki hjálpað, og eyra hans er ekki svo þykkt, að hann heyrir ekki." (Jes. 51.1)
Tökum okkur tíma til að biðja í vikunni og væntum þess að sjá breytingar. Allir sem áhuga hafa á að biðja eru velkomnir að koma á bænastundirnar.

17.1.2010
Bænavika framundan!
Er nokkuð til öflugra en bænaher? Á morgun hefst alþjóðleg bænavika og við í Kirkjulækjarkoti ætlum að taka þátt í henni. Bænastundir verða daglega í þessari viku og allir sem hafa tök á eru hvattir til að mæta. Í kirkjunni í Kirkjulækjarkoti verða bænastundir kl. 20 öll kvöld 18.-23. janúar nk. Á Hvolsvelli hefjast bænastundirnar kl. 18 en þar verður hist í heimahúsum til að biðja. Í kirkjunni hanga upplýsingar um hvar verður beðið hvenær, en ef einhver vantar þessar upplýsingar má senda tölvupóst á netfangið sem gefið er upp neðst á þessari síðu.
Tökum þátt í bæninni! Þannig brjótum við múra sem ekkert annað er fært um að brjóta!
Tökum þátt í bæninni! Þannig brjótum við múra sem ekkert annað er fært um að brjóta!
7.1.2010
Óformlegur safnaðarfundur
Á laugardaginn, 9. janúar nk, verður óformlegur safnaðarfundur í kirkjunni. Fundurinn hefst kl. 11.00. Á fundinum verða rædd ýmis mál er varðar kirkjustarfinu. Boðið verður upp á léttar veitingar.
6.1.2010
Brauðsbrotning
Jólahátiðin er að vera búin og hefðbundin dagskrá kirkjunnar er að taka við. Fyrsta brauðsbrotning ársins verður fimmtudaginn 7. janúar kl. 20. Hvetjum fólk til að mæta.
2.1.2010
Gleðilegt nýtt ár!
Nú er búið að setja inn upptökur frá samkomum í desember (smellið á Upptökur hér að ofan). Vegna anna reyndist það því miður ekki hægt fyrr. Meðal efnis sem nú er aðgengilegt er upptaka frá vitnisburðarsamkomu sem var á gamlársdag. Margir stóðu upp og sögðu frá því sem Guð hefur gert á liðnu ári. Einnig er ræðan frá því á jóladag og frásögn þeirra Hinriks og Gullýjar af starfi sínu í Afríku komnar á netið.
Nú fer hefðbundin dagskrá kirkjunnar að fara af stað eftir jólahátíðina. Fyrsta samkoma ársins verður á morgun kl. 14.00 og eru allir hjartanlega velkomnir á hana. Athugið að fyrsta fjölskyldusamkoman á nýju ári verður þriðjudaginn 12. janúar nk. kl. 18.00.

Flettingar í dag: 175
Gestir í dag: 55
Flettingar í gær: 218
Gestir í gær: 52
Samtals flettingar: 182190
Samtals gestir: 30095
Tölur uppfærðar: 5.9.2010 21:56:26