Færslur: 2009 Desember
23.12.2009 20:42
Samkomur um jólin
Nú styttist óðum í jólin þar sem við fögnum fæðingu frelsarans. Um jól og áramótin verða samkomur sem hér segir:
Aðfangadagur: Aftansöngur kl. 16.30
Jóladagur: Hátíðarsamkoma kl. 14.00
Gamlárskvöld: Vitnisburðarstund kl. 16.30
Nýársdagur: Engin samkoma.
Sunnudaginn 3. janúar: Samkoma kl. 14.00.
Gleðileg jól!
Aðfangadagur: Aftansöngur kl. 16.30
Jóladagur: Hátíðarsamkoma kl. 14.00
Gamlárskvöld: Vitnisburðarstund kl. 16.30
Nýársdagur: Engin samkoma.
Sunnudaginn 3. janúar: Samkoma kl. 14.00.
Gleðileg jól!
Skrifað af Katrínu
18.12.2009 10:03
Fjölskyldusamkoma
Nú fer að styttast í jólin og því munum við breyta aðeins til um helgina. Á sunnudaginn verður fjölskyldusamkoma sem hefst með lofgjörð en síðan tekur við óhefðbundin dagskrá. Í haust hafa verið fjölskyldusamkomur á þriðjudögum þar sem dagskráin miðar við að höfða til barna í kirkjunni. Síðast liðnar vikur hafa börnin búið til og æft helgileik sem sýndur verður á samkomunni á sunnudaginn. Að helgileik lokinni verða leikir og fleiri uppákomur fyrir alla fjölskylduna. Í loftstofunni verður pálínuboð og eru þeir sem hafa tök á beðnir að koma með eitthvað á hlaðborðið.
Allir eru hjartanlega velkomnir á samkomuna!
Allir eru hjartanlega velkomnir á samkomuna!
Skrifað af Katrínu
16.12.2009 21:20
Trúfesti
Maður nokkur um tírætt var hugsað til loforðs sem hann hafði fengið. Loforðið var á þá leið að hann ætti eftir að eignast barn. Sjálfsagt hefur þessi maður hugsað það sama og þú og ég hugsum þegar við fréttum af tíræðum manni í barneignarhugleiðingum: Þetta er nú líklega ekki hægt. Maðurinn var giftur en konan var komin úr barneign og ekki höfðu þau náð að eignast barn fram til þessa. Hann efaðist örugglega oft og tít um loforðið sem honum var gefið, ekki síst vegna aldurs eiginkonunnar. Dag einn kom þó að því: Konan varð ófrísk og hún fæddi son. Orð fá varla lýst þeirri gleði sem hjónin nú upplifðu.
Þessi maður hét Abraham og sonur hans Ísak. Við þekkjum líklega flest söguna. Sá sem gaf Abraham loforðið var sjálfur Guð og hann stóð við það. Trúfesti Guðs er svo mikið að það er traustsins vert. Draumur virðist fjarlægur en loforð sem Guð hefur gefið stenst. Sagt var fyrir um fæðingu Jesú fleiri hundruð ár áður en hann kom í heiminn! Margir geta vitnað um það hvernig loforð sem Guð hefur veitt hafa ræst. Biblían er full af loforðum til okkar. Til dæmis segir í Fillipíbréfinu 4.19: "En Guð minn mun af auðlegð dýrðar sinnar í Kristi Jesú uppfylla sérhverja þörf yðar." Það þýðir að Guð sér fyrir öllu því sem við þurfum á að halda. Það kann að sýnast óraunverulegt í sumum kringumstæðum en þá er gott að minna Guð á loforðið. Margir vitnisburðir eru til um það hvernig matarlaust fólk hefur fengið mat að gjöf þegar allt virtist vonlaust. Kringumstæður sem virtust óleysanlegar hafa skyndilega breyst til betri vegar. Það snýst um að gefa ekki upp vonina. Ef þú ert í þörf fyrir kraftaverk í dag, þá skaltu biðja Guð að uppfylla þörfina. Hann er sá sem getur það. Vertu líka vakandi fyrir hugmyndir sem kunna að skjóta upp kollinum skyndilega. Kannski er Guð að biðja þig að gera eitthvað sem reynist svo vera bænasvar fyrir aðra manneskju...
Minnum á brauðsbrotningu á morgun kl. 20. Þetta verður síðasta brauðsbrotning ársins.

12.12.2009 17:26
Ástarbréf til þín!
Fyrir einhverjum árum síðan var maður nokkur í Bandaríkjunum sem fékk að upplifa kærleika Guðs. Hann fór að skoða Biblíuna og bækur um föðurást Guðs. Úr varð safn af Biblíuversum. Guð benti honum á að setja þau rétt saman en þannig mætti búa til ástarbréf. Þetta gerði maðurinn og síðan hefur þetta ástarbréf frá Guði farið um allan heim. Þegar það var sett á netið árið 1999 voru heimsóknir á síðuna svo margar að netþjónninn réði varla við álagið!
Hér fyrir neðan er búið að lesa bréfið upp á ensku og setja lag og myndir við. Hvet þig til að kíkja á það !
Hér fyrir neðan er búið að lesa bréfið upp á ensku og setja lag og myndir við. Hvet þig til að kíkja á það !
Skrifað af Katrínu
08.12.2009 22:34
Faðir, finndu mig!
Guð elskar þig! Vonandi veistu það nú þegar. Við mennirnir kunnum að elska hvert annað en oft er slík væntumþykja eða kærleikur háður skilyrðum. Það þýðir að okkur þykir vænt um hvert annað meðan ákveðnum skilyðum er uppfyllt (meðan við hegðum okkur svo aðrir líka, segjum réttu orðin eða hugsum réttu hugsanirnar). Þannig er Guð ekki. Hann elskar skilyrðislaust. Hann elskar okkur eins og við erum, ekki vegna þess að við lesum í Biblíunni á hverjum degi eða hegðum okkur rétt. Hann elskar okkur þrátt fyrir að við gerum hluti sem eru ekki uppörvandi. Hann elskar þig vegna þess að hann skapaði þig. Við mennirnir getum brugðist en Guð bregst ekki.
Síðast liðinn sunnudag talaði Jóhannes Hinriksson um kærleika Föðurins til okkar. Hann sagði frá því að Guð kom til okkar (en ekki öfugt). Hefur þú fundið himneska Pabba þinn? Biddu þá þessarar bænar: "Faðir, finndu mig!" Þetta var hvatning Jóhannesar. Hann sagði frá því hvernig nokkrir einstaklingar hafa fengið að upplifa föðurást Guðs. Þetta eru mjög sérstakir vitnisburðir og ég hvet þig eindregið til að hlusta á ræðuna, ef ekki fyrir annað en að heyra hvernig aðrir hafa fengið að upplifa kærleika Guðs föður.
Minnum svo á bænastund næstkomandi fimmtudag kl. 20 í kirkjunni.

03.12.2009 19:51
Bænadagur og vitnisburðarsamkoma
Síðast liðinn laugardag var bænadagur í kirkjunni. Beðið var fyrir landi og þjóð sem og öðrum bænarefnum. Byrjað var að biðja kl. 9 og stóð bænin í 10 klukkustundir (síðast var beðið í fimm klukkustundir). Þátttakan var góð og mikil ánæga var með framtakið.
Á samkomunni daginn eftir stóð til að Jóhannes myndi tala. Nú er veturinn skollinn á og Jóhannes og fjölskylda voru hreinlega veðurteppt! Því var ákveðið að hafa vitnisburðarsamkoma í staðinn. Mjög spennandi og uppörvandi var að hlusta á vitnisburðina. Samkoman var tekin upp en það er smá bið ennþá eftir að fá hana á netið. Vona að fólk sýnir þolinmæði á meðan :).

- 1
Flettingar í dag: 93
Gestir í dag: 30
Flettingar í gær: 380
Gestir í gær: 82
Samtals flettingar: 341438
Samtals gestir: 64543
Tölur uppfærðar: 20.5.2012 13:18:25