Fréttir

27.11.2009

Bænadagur

Á morgun laugardag verður bænadagur í kirkjunni. Þessi dagur er helgaður bæn fyrir landi og þjóð (og jafnvel öðru sem nauðsynlegt er að biðja fyrir). Bænadagurinn hefst kl. 9 og mun standa til kl. 19 eða lengur ef stemning er fyrir því. Fólki er frjálst að koma og fara og menn geta því litið við þegar hentar og stoppað eins lengi og áhugi er fyrir. Í loftstofunni er boðið upp á kaffi og kex á sama tíma. Síðast tókst mjög vel til við að hafa bænadag og því væntum við mikilla hluta á morgun einnig.

Næstkomandi sunnudag er svo samkoma kl. 14. Jóhannes Hinriksson mun tala þá. Hann var á móti í London um síðustu helgi og því aldrei að vita hvort við fáum að heyra eitthvað frá þeirri ferð. Allir eru hjartanlega velkomnir á samkomuna!

Skrifað 27.11.2009 kl. 13:31 af Katrínu

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

24.11.2009

Dagur í áætlun Guðs

Veistu, þetta er ekki bara venjulegur dagur. Þessi dagur í dag er dagur í áætlun Guðs. Dagur sem skiptir máli fyrir Guð og fyrir þig. Þetta getur verið dagur til að dragast nær Guði eða dagur opinberunar þar sem Guð sýnir þér nýja hluti. Kannski finnst þér að þessi dagur hafi ekki verið einn af þínum bestu en biddu þá Guð að gera eitthvað gott úr því sem gerðist. Það er enginn dagur svo ómerkilegur að hann skiptir ekki máli. Byrjaðu að biðja Guð að sýna þér áætlun sína fyrir þig og þitt líf. Hann hefur svo margt sem hann vill sýna þér (mundu að Guð hefur áætlun til góðs fyrir þig, sbr. Jer. 29.11).

Árni Þórðarson talaði á samkomu á sunnudaginn var (ræðan er komin á netið fyrir þá sem hafa ekki hlustað á hana enn). Mögnuð ræða. Guð hefur opinberað ýmsa hluti fyrir Árna sem meðal annars snerta land og þjóð. Árni hefur spámannlega þjónustu að gegna í ríki Guðs og kemur það skýrt fram í predikun hans. Boðið var fram til fyrirbænar eftir ræðuna á sunnudaginn og allir viðstaddir stóðu upp! Alla vega tveir læknuðust af bakverk eftir að þekkingarorð kom fram um það.
Í næsta mánuði mun Árni fara til Indlands til að þjóna og það verður virkilega spennandi að sjá hvað Guð ætlar að gera þar! Munum eftir honum í bænum okkar. Fyrir forvitna er vert að benda á heimasíðu Árna, 123.is/video

Minnum svo á bænastund á fimmtudaginn kl. 20 í kirkjunni. Nærvera Drottins er búin að vera svo yndisleg á þessum stundum og ástæða til að ætla að svo verði áfram!

Skrifað 24.11.2009 kl. 22:13 af Katrínu

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

20.11.2009

Vaknaðu!

Hve miklu tekur þú eftir þegar þú sefur? Varla eins miklu og þegar þú ert vakandi. Það eru margar leiðir til að vera sofandi (aðrar en að liggja uppi í rúmi og hrjóta... :)). Það er mikilvægt að vera andlega vakandi.
Okkur finnst oft Guð vera misnálægur. Stundum er nærvera Guðs svo augljós að hún fer ekki framhjá okkur. En það koma líka tímar þar sem Guð fer í feluleik með okkur. - Og það erum við sem erum 'ann! Guð er hjá okkur en við sjáum hann kannski ekki. Hann vill að við leitum að sér. Þannig er jú feluleikur.
Ungabörn eru mjög upptekin af því sem þau sjá. Ef þú heldur dót fyrir framan litlu barni teygir það sér eftir dótið og vill skoða það. Ef dótið hverfur úr augnsýn þess er það líka horfið úr huga þess. Þegar barnið eldist breytist þetta og það fer að gera sér grein fyrir tilvist hluta sem það sér ekki. Það er komið á þann aldur að geta farið í feluleik.
Þegar við vorum sem ungabörn í Guði, þá var Guð mjög sýnilegur og auðvelt að finna hann. Svo eldumst við og Guð fer með okkur í feluleik. Hvað ætlar þú þá að gera? Láta sem Guð sé hættur að vera til eða sýna þroska, standa upp og fara að leita að honum?
Hvernig leitum við svo að Guði? Það eru eflaust til fleiri leiðir. Byrjaðu á að biðja (og leita hans eins og Biblían segir). Taktu frá tíma til að eiga með Guði þar sem þú leyfir honum að gera það sem hann vill. Guð hefur lofað okkur að við munum finna hann þegar við leitum til hans af öllu hjarta (Jer.29.13-14).
Davíð gerði mikið af að leita auglit Drottins og í Sálmunum er að finna hvatningar til að leita Guðs (t.d. Sálm. 28 og 105). Vöknum því og leitum Drottins! Nú er tími til þess! Vakningin er hafin. Ætlar þú að taka þátt eða halda áfram að blunda?

Á sunnudaginn mun Árni Þór Þórðarson tala til okkar á samkomunni. Mjög áhugavert er að hlusta á þennan mann tala og hann er svo sannarlega smurður til þess af Guði. Boðskapurinn sem hann hefur að flytja er mjög merkilegur og miðað við það sem undirrituð hefur þegar heyrt, þá er gott í vændum á sunnudaginn. Kítku á heimasíðu Árna Þórs til að skoða nánar (hún er líka í krækjulistanum hér til hægri).

Skrifað 20.11.2009 kl. 20:40 af Katrínu

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

16.11.2009

Byrjaðu vikuna rólega

Jarek Dudziak talaði á samkomunni í gær og fjallaði þar um mikilvægi hvíldar. Í dag er mánudagur og helgin að baki en margir hafa eflaust reynt að nýta sér hana til að hvíla sig. En það er ekki nóg að hvíla líkamann. Við þurfum líka að sækja hvíldar til Guðs. Byrjaðu vikuna á því að hlusta á ræðu Jareks og byrjaðu vikuna á að hvíla þig í Guði. Ræðan er komin á netið.

Skrifað 16.11.2009 kl. 16:28 af Katrínu

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

14.11.2009

Hvíld

Við höfum eflaust öll fengið að reyna að verða þreytt. Þegar þreytan hellist yfir mann langar mann helst að hvíla sig. Hvíld er lífsnauðsynleg. Án þess að hvílast getur hvorki líkaminn, sálin né andinn starfað eðlilega. Það þarf því ekki að deila um mikilvægi hennar.
"Komið til mín, allir þér sem erfiði hafið og þungar byrðar, og ég mun veita yður hvíld." Svo segir Jesús í Matt.11.28. Sumt leysist ekki bara við það að sofa. Í þessu versi er loforð: Ef við erum þreytt og leitum til Jesú, þá mun hann veita okkur hvíldina. Marta hafði mikið að gera en María fékk hrós fyrir að setjast við fætur Jesú (Lúk.10). Það er einmitt það sem gott er að venja sig á að gera: Koma til Jesú, verja tíma með honum og hvílast. Þannig getum við endurnýjast til anda, sálar og líkama. Það gerir gæfumuninn að vera úthvíldur!

Á samkomunni á morgun mun Jarek Dudziak prédika. Að venju hefst samkoman kl. 14 og allir eru hjartanlega velkomnir. Kaffi og samfélag í loftstofunni eftir samkomu.

Skrifað 14.11.2009 kl. 19:39 af Katrínu

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

10.11.2009

Góð byrjun

Í dag var fyrsta fjölskyldusamkoman sem við höldum á þriðjudegi. Það var nokkuð ljóst að breytingin var til hins betra því mætingin var mjög góð (töluvert betri en hingað til). Vonandi heldur það áfram þannig.
Síðast voru málaðar myndir af Davíð og Golíat í fullri stærð. Börnin voru mjög dugleg að mála þá en í dag var kíkt á árangurinn enda málningin orðin þurr. Ákveðið var að hengja myndirnar upp sem reyndist hægara sagt en gert, enda var Golíat (og þar með líka myndin af honum) þrír metrar á hæð. Það þyrfti nánast stillans til að klára verkið en það hafðist að lokum. Þegar myndirnar voru komnar upp var alveg augljóst að Golíat var ekki bara stór heldur risavaxinn. Davíð var kannski helmingi minni en hann enda var Davíð unglingur þegar einvígið milli þeirra var. Það var því augljóst að eina leiðin til að sigra slíkan risa var að fá Guð með sér í liði. Það gerði Davíð og því gat hann fellt risann í fyrstu tilraun. Það skiptir máli í hvaða liði maður er. Ert þú búin(n) að velta því fyrir þér? Skoðaðu 23. Davíðssálm til að sjá ávinninginn af því að eiga Guð sem föður.

Fyrir þá sem langar að vafra um á netinu, þá eru komnir nýjir tenglar í tenglasafninu aðeins neðar á síðunni... Ef þú veist um góða síðu sem ætti að vera á listanum, sendu þá póst á netfangið neðst á síðunni og við kíkjum á það.

Skrifað 10.11.2009 kl. 19:56 af Katrínu

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

9.11.2009

Fjölskyldusamkomur - breytingar!!

Í haust höfum við verið með fjölskyldusamkomur þar sem áherslan hefur verið á kennslu fyrir börnin. Nú stendur til að gera örlitla breytingu vegna fjölda áskoranna:
Frá og með morgundeginum verða fjölskyldusamkomur á ÞRIÐJUDÖGUM kl. 18-19.
Allir eru hjartanlega velkomnir eins og venjulega!

Skrifað 9.11.2009 kl. 10:09 af Katrínu

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

9.11.2009

Garðyrkjumaðurinn og plönturnar hans

Garðyrkjumaðurinn var að tala á samkomu í gær, - hann talaði einmitt um Garðyrkjumanninn. Þannig er mál með vexti að oft fyrirfinnast dauð eða hálfdauð blöð, greinar eða annað á plöntum. Venjan er að klippa dauðu hlutina burt því þá vex og dafnar plantan betur. Oft ræður plantan ekki við að losa sig við dauða vextinum sjálf. Þar kemur garðyrkjumaðurinn inn. Hann er með klippur og önnur góð ráð. Garðyrkjumaðurinn snyrtir plöntuna með gleði og kærleika, því hann vill að plöntunni líði sem allra best.
Þannig er Guð líka. Hann er eins og garðyrkjumaður sem snyrtir plönturnar sínar til að þær verðir fallegri og líði sem best. Guð elskar plöntur! Hann hefur gaman af að vinna garðyrkjustörf. Börn Guðs eru eins og greinar á vínvið (Jóhannesarguðspjall 15. kafli). Guð elskar að snyrta greinarnar svo vínviðurinn fái að njóta sín enn betur. Það er því engin ástæða til að óttast klippurnar!
Þetta var einmitt það sem Gylfi Markússon talaði um í gær. Guð vill hreinsa okkur og snyrta svo við verðum enn fallegri og berum enn meiri ávöxt. Ræðan er komin á netið fyrir þá sem vilja hlusta á hana. Á upptökunni má einnig heyra Jóhannes Hinriksson lesa úr Biblíunni og Annika Rosén segir frá draumi sem Guð gaf henni. Lofgjörðin var alveg frábær og alveg ljóst að Guð hefur boðskap sem hann vill koma til barna sinna.

Skrifað 9.11.2009 kl. 9:52 af Katrínu

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

7.11.2009

Í kirkjunni er í gangi námskeið fyrir þá sem vilja læra meira um predikun. Markmiðið er að kenna fólki að setja saman predikun og predika. Afraksturinn munum við fá að njóta í kirkjunni. Fyrsti nemandinn hélt ræðu á brauðsbrotningunni um daginn, en það var hún Kristín Dudziak. Upptaka frá þeirri samkomu er væntanleg á netið innan skamms. Á brauðsbrotningunni var Andinn mjög nálægur eins og venjulega. Lofgjörðin var yndisleg og bænarandinn var svo sannarlega sterkur. Mikið var beðið fyrir sjúkum. Nærveran var alveg einstök.

Á morgun fáum við svo að heyra í mjög reyndum ræðumanni. Gylfi Markússon mun tala á samkomu kl. 14. Það þarf væntanlega ekki að kynna hann frekar til sögunnar enda hefur hann talað í kirkjunni hjá okkur margoft. Við hvetjum alla sem hafa tök á til að koma á samkomu á morgun og heyra hvað Gylfi vill deila með okkur þá. Sjáumst!

Skrifað 7.11.2009 kl. 16:53 af Katrínu

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

3.11.2009

Fjölskyldusamkoma og brauðsbrotning

Það er nú rúmt ár síðan við byrjuðum með fjölskyldusamkomur í Kirkjulækjarkoti - og við erum hvergi nærri hætt! Á morgun höldum við áfram að fjalla um 23. Davíðssálm en við erum nú stödd í fjórða versi þar sem segir frá því hvernig við þurfum ekki að óttast því Drottinn er með okkur. Hvað er eiginlega hægt að óttast ef Guð, sem er æðri öllu, er með okkur? Eins og Páll postuli orðar það: "Ef Guð er með oss, hver er þá á móti oss?" (Róm. 8.31) Það er enginn stærri eða meiri en Guð svo það er nokkuð ljóst hver hefur unnið. Síðasta miðvikudag var sagt frá drengnum Davíð sem bauð sig fram í einvígi gegn risanum Golíat. Golíat var vissulega stærri mannlega séð (um þrír metrar á hæð skv. því sem Biblían segir). Málið var bara að Guð var með Davíð í liði og þar sem Guð er stærri og meiri en Golíat, þá þurfti ekki að spyrja að leikslokum. Davíð vissi hver væri með honum. Hann vissi að þetta var í raun ekki einvígi milli hans og Golíats heldur frekar milli Guðs og Golíats. Það var því ekkert að óttast.
Á morgun höldum við að sjálfsögðu áfram að læra meira um Guð. Við munum einnig mála og því er mikilvægt að samkomugestir komi klæddir til þess (sem sagt ekki mæta í fínu fötunum :) ). Samkoman hefst kl. 18 og stendur í klukkutíma. Allir eru velkomnir!!

Á fimmtudaginn er brauðsbrotning enda er nýr mánuður hafinn. Síðast var nærvera Guðs alveg einstök og þvílík forréttindi að fá að upplifa slíkt. Við væntum þess að Guð mæti á þessari stund líka en brauðsbrotningin hefst kl. 20.

Skrifað 3.11.2009 kl. 19:31 af Katrínu

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

1.11.2009

Ertu í formi?

Skoða nánar

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 191
Gestir í dag: 56
Flettingar í gær: 218
Gestir í gær: 52
Samtals flettingar: 182206
Samtals gestir: 30096
Tölur uppfærðar: 5.9.2010 22:19:22

Þér hlið, lyftið höfðum yðar, hefjið yður, þér öldnu dyr, að konungur dýrðarinnar megi inn ganga.
Hver er þessi konungur dýrðarinnar? Drottinn hersveitanna, hann er konungur dýrðarinnar.
 
Sálmur 24 : 9 - 10

Hvítasunnukirkjan Kirkjulækjarkoti
861 Hvolsvöllur

Vefstjórar: Jarek Dudziak og Katrín M. Eiríksdóttir

Netfang vegna heimasíðu: katrinme (hjá) gmail.com