Færslur: 2009 Október

31.10.2009 15:42

Meistarinn er hér og vill finna þig!

Það er augljóslega farið að hausta hér hjá okkur. Laufin eru fallin og það er hvasst öðru hvoru. Það er líka farið að skyggja fyrr. Tímar breytast og nýtt tekur við. Guð er alltaf að gera nýja hluti. Hann er meistari í að kalla fram nýtt í okkar lífi (og í lífi annarra). Það getur verið mjög spennandi þegar nýjir hlutir gerast en líka ákveðin áskorun. Eitt sem við vitum er að þegar Guð er með í för og við treystum honum, þá getur það ekki endað illa. Guð talar til okkar og við heyrum þegar við gefum okkur tíma til að hlusta. Hann talar þegar þegar við erum ein, hann bendir okkur á atriði þegar við lesum Biblíuna okkar. Þegar við erum á samkomu getur hann líka snert við okkur. Okkar hlutverk er að gefa okkur tíma og leyfa honum að snerta okkur. Ef þú hefur fundið fyrir snertingu frá Guði einu sinni, þá er ekki ólíklegt að þig langi til að prófa þetta aftur. Guð er kærleikur (1.Jóh.3.16) og hann hefur aðeins góðar áætlanir fyrir þitt líf (Jer.29.11). Leyfum Guði að komast að í lífi okkar og þá munu nýjir hlutir spretta upp.
Á morgun verður samkoma kl.14 eins og venjulega á sunnudögum. Gott er að ákveða fyrirfram að leyfa Guði að starfa á samkomunni og hleypa honum svo að, til dæmis í lofgjörðinni. Guð er nálægur og hann langar að gera góða hluti í þínu lífi. Jóhannes Hinriksson mun tala á samkomunni og það verður fróðlegt að heyra hvað Guð vilji deila með okkur þá. Allir eru velkomnir!

27.10.2009 16:12

Fjölskyldusamkoma

Þá styttist óðum í fjölskyldusamkomu sem verður á morgun kl. 18-19. Undanfarið hafa börnin verið að læra um Davíð og Sál og hvernig Guð getur hjálpað okkur í hinu daglega lífi. 23. Davíðssálmur hefur verið sungin mjög oft, enda tengist hann efninu svo vel. Nú er komið að því að kynna fjórða minnisvers haustsins en það verður gert á morgun. Þá verður gaman að sjá hvaða saga verður sögð og hvort ekki verði hægt að gera eitthvað fleira skemmtilegt. Allir eru hjartanlega velkomnir á fjölskyldusamkomu.

Minnum svo á bænastund á fimmtudaginn kl. 20.

25.10.2009 16:29

Leyfðu Guði að vera með

Hversu oft höfum við ætlað að vinna stórverk í eigin mætti? Við viljum þjóna, við höldum að Guð elski okkur ekki nema við séum á fullu í þjónustu fyrir hann. Í Biblíunni er talað um að sáðmaðurinn sér um að sá og Guð gefur svo vöxtinn. Kartöflubóndinn setur niður útsæði og treystir á uppskeru um haustið. Ekki fer hann út á akurinn um mitt sumar til að grafa upp kartöflurnar og reyna að láta þær stækka... Guð er búinn að vinna verkið fyrir okkur. Stundum erum við svo upptekin af að gera nákvæmlega það sem hann er að gera eða er jafnvel búinn að gera. Við þurfum að læra að leyfa honum að komast að. Þá verður allt miklu auðveldara og léttara. Siggi frá Selfossi talaði um þetta í dag. Hann hefur fengið að reyna þetta sjálfur og veit hvað það breytir miklu að hætta að vinna verk sem Guð ætlar að sjá um. - Og Guð elskar okkur rosalega mikið. Ekki vegna þess sem við viljum gera, heldur erum við elskuð af fyrra bragði. Við erum elskuð vegna þess að við erum sköpun hans, ekki vegna þess að við gerum svo mikið :) Ræðan er komin á upptökusíðuna.

23.10.2009 17:08

Heimsókn frá Póllandi og Bandaríkjunum

Það var kannski ekki fjölmennt á samkomunni ígær enda eru pestir að ganga þessa dagana. Pastor Wieslaw frá Póllandi talaði til okkar á samkomunni og var orðið að venju frábært. Wieslaw hefur hjarta fyrir Íslandi og þá sérstaklega fyrir starfi meðal Pólverja en í predikun hans ígær kom fram hvatning til krikjunnar um hvað best er að gera þessa stundina. Við viljum gjarnan sjá vakningu á Íslandi en það er nauðsynlegt að undirbúa sig. Best er að byrja á sjálfum sér og kom Wieslaw með hvatningu um hvað við getum gert.
Með Wieslaw kom vinur hans, lofgjörðarleiðtoginn Eric frá Bandaríkjunum. Hann sagði frá sjálfum sér og hvað Guð hefur gert fyrir hann. Síðan tók hann lagið fyrir okkur og sá kann svo sannarlega að spila og syngja! Samkoman var tekin upp (sérstaklega fyrir þá sem ekki komust í gær vegna veikinda) og gaf Eric okkur leyfi til að birta lagið hans líka :). Upptakan er komin á Netið (smellið hér til að nálgast hana). Hvetjum alla til að hlusta á hreint frábæran boðskap!

22.10.2009 12:49

Kyrrðarstund og heimsókn frá Póllandi

Síðast liðinn sunnudag var vitnisburðarstund í kirkjunni. Margir stigu fram og vitnuðu um það sem Guð hefur gert fyrir þau. Það voru margir athyglisverðir vitnisburðir. Það voru nokkur tæknileg vandamál með upptökuna fyrst en hljóðmálin björguðust svo og er liggur upptakan nú hér á vefnum fyrir þá sem eru ekki þegar búnir að hlusta.
Í kvöld mun pastor Wieslaw tala á samkomu í kirkjunni. Stundin hefst kl. 20 og eru allir velkomnir. Wieslaw kemur frá Póllandi og hefur heimsótt okkur hingað áður. Hann hefur oft komið með mjög góð og fræðandi orð til okkar og því er óhætt að gera ráð fyrir að það verður áhugaverð predikun í kvöld líka.
Þeir sem vilja taka stundina snemma geta mætt á kyrrðarstund í kirkjunni en frá kl. 17 verður Annika með rólega lofgjörðartónlist á fyrir þá sem vilja dvelja í nærveru Guðs. Gott er að koma með teppi, kodda, Biblíu, blað og penna (til að skrifa niður það sem Guð vill segja við þig í dag) á kyrrðarstundina. Hvetjum alla sem hafa tök á að koma til að láta verða að því.

17.10.2009 11:43

Heppin/n ertu!

Veistu hvað við erum heppin, við sem búum hér á Íslandi? Við getum farið í kirkju án þess að brjóta lög. Samkomurnar okkar eru ekki haldnar á leynilegum stöðum. Við getum talað um Guð án þess að eiga á hættu að lenda í fangelsi vegna hennar. Biblían er ekki bönnuð bók. Við þurfum ekki að fela okkur vegna trúar okkar. Við tökum þetta allt sem sjálfsögðum hlut og hugsum jafnvel ekkert út í það hvað aðrir þurfa að búa við. Víða í hinum stóra heimi er töluvert flóknara mál að vera kristinn. Sums staðar er það jafnvel bannað og menn eiga á hættu að verða handteknir og jafnvel líflátnir fyrir það eitt að trúa á Jesú Krist sem frelsara okkar. Kristnir verða þá að fela Biblíurnar sínar, þeir hittast á leynilegum stöðum til að halda samkomur og menn hvorki tala né blogga opinskátt um trú sína eða hvað Guð hefur gert fyrir þá.

Á sunnudaginn verður samkoma kl. 14 og að þessu sinni verður vitnisburðarstund. Ef Guð hefur gert eitthvað stórkostlegt fyrir þig, þá er tækifæri til að deila það með öðrum á morgun. Hér á Íslandi hafa menn ekki lent í fangelsi vegna þess að þeir hafa vitnað um Jesú Krist. Samt er gott að undirbúa sig fyrir vitnisburðarstundina. Hugsaðu um hvað þig langar að segja og í hvaða röð. Kannski eru vers úr Biblíunni sem tala um þetta sama. Markmiðið er að hafa vitnisburðinn hnitmiðaðan og hæfilega langan svo allir sem vilja segja frá komist að. Munum svo að biðja fyrir þeim sem eru ofsóttir vegna trúar sinnar og þökkum Guði fyrir að búa í landi þar sem kristin trú er ekki bönnuð með lögum. Allir eru hjartanlega velkomnir á samkomuna.

13.10.2009 20:59

Sá sem heldur út mun sigra

Það var himneskur hljómur í lofgjörðinni á samkomunni sl. sunnudag. Það var yndislegt að fá að upplifa nærveru Guðs enn einu sinni. Guð var svo sannarlega til staðar og vildi eiga stund með okkur. Það er lítið sýnishorn af lofgjörðinni á upptökunni sem er væntanleg inn á síðuna. Hafa ber í huga að upptakan er hrá og óblönduð en vonandi getur þú fundið fyrir nærverunni sem var á samkomunni.

Óli Björn er kominn heim frá Bandaríkjunum en hann dvaldi í ZHOP-bænahúsinu. Hann gaf sinn vitnisburð á samkomunni og sagði frá hluta af því sem hann upplifði þarna úti. Frásögn Óla er einnig á upptökunni fyrrnefndu.

Paulo Sicoli talaði svo til okkar á samkomunni. Hann talaði um þolgæði og úthald. Til þess að halda út í langhlaupi, þá er nauðsynlegt að undirbúa sig. Enginn tekur þátt í maraþonhlaupi nema hafa æft sig lengi og þjálfað líkama sinn.  Einnig er nauðsynlegt að fá stuðning frá þjálfara og fólk í kringum þig. Loks þarftu að hafa markmið. Þú verður að vita hvert þú stefnir. Lífið er maraþonhlaup. Til að ná árangri þarftu að fá þjálfun, þú þarf stuðning og þú verður að vita að hverju þú stefnir. Þannig verður lífið markvissara og líklegra er að maður nái árangri. Guð vill vera þjálfarinn okkar, hann vill hjálpa okkur að æfa okkur og hann gefur okkur markmið til að stefna að. Það snýst um að hleypa honum að. Þeir sem treysta Guði eru sigurvegarar. Á himnum eru svo verðlaun fyrir þá sem halda út, því ekki stritum við til einskis. Til að fá að vita meira verður þú að hlusta á ræðuna :)

Á morgun verður fjölskyldusamkoma kl. 18-19. Samkomugestir munu fá nýtt minnisvers, hljómsveitin okkar spilar og við munum vonandi eiga góða stund saman. Allir eru velkomnir!

10.10.2009 16:14

Logn í miðjum stormi

Það lægir yfirleitt alltaf eftir storm. Fyrr eða síðar... Lífið getur verið stormasamt líka og stundum virðist sem aldrei ætli að lægja aftur. Þá er gott að geta leitað skjóls einhvers staðar. 
"Á grænum grundum lætur hann mig hvílast, leiðir mig að vötnum þar sem ég má næðis njóta" segir í 23. Davíðssálmi. Þetta vers hafa börnin verið að læra á fjölskyldusamkomunum undanfarið. Guð vill leiða okkur á stað þar sem við getum hvílst og notið þess að vera með honum. Þegar verstu stormarnir geisa í lífinu, þá er einn staður þar sem öruggt er að finna skjól: Hjá pabba okkar á himnum!. 
Síðast liðinn miðvikudag fengu börnin tækifæri til að dvelja í nærveru Guðs. Það var yndislegt að heyra börnin segja frá því sem þau höfðu upplifað með Guði og þau höfðu öll ólíkar sögur að segja enda erum við öll einstök. Við erum ekki sköpuð til að vera eins heldur til að vera einstaklingar sem hvert og eitt erum með ákveðin sérkenni (enda er aðeins eitt eintak til af hverri manneskju). Við þurfum stundum að læra að meta þessi sérkenni. Guð þekkir þau og vill endilega fá að taka þátt í því sem nákvæmlega þér finnst skemmtilegast, best, merkilegast eða yndislegast. En til þess þurfum við að leyfa honum að leiða okkur að þessum grænu grundum. Ákvörðunin er þín. Þú getur byrjað í dag. Komdu þér fyrir á þægilegan stað þar sem ekkert truflar (slökktu á símanum ;) ), leyfðu kannski rólega lofgjörðartónlist að hljóma í bakgrunninum. Lokaðu augunum og ímyndaðu þér stað, þar sem grundirnar eru grænar, kannski eru einhver falleg vötn í grenndinni, veðrið er yndislegt og þér líður vel. Sjáðu fyrir þér að Jesús kemur labbandi til þín... Leyfðu honum að segja eða gera það sem hann vill gera með þér í dag. 

Á morgun er svo samkoma kl. 14 í kirkjunni í Kirkjulækjarkoti. Þar er hægt að fá meira af Guði. Við munum lofa Guði saman, biðja og svo mun Paulo Siccoli tala til okkar að þessu sinni. Eftir samkomu verður svo hægt að spjalla og eiga samfélag saman. Allir eru velkomnir. Hlökkum til að sjá þig!

06.10.2009 16:57

Maður uppsker sem hann sáir...

Sáðmaðurinn veit það, garðyrkjufólk veit það, korn- og blómabændur vita það. Samt er góð vísa sjaldan of oft kveðin: Svo uppsker maður sem hann sáir. Ef við sáum blómafræjum munu vonandi vaxa blóm en ekki tré eða runnar. Þetta gildir líka um margt annað sem við tökum okkur fyrir hendur. Ef við höfum góð og jákvæð samskipti við fólkið í kringum okkur, þá munum við væntanlega uppskera vináttu og góðar minningar. Guð er líka þannig. Jóhannes Hinriksson talaði um sáningu og uppskeru síðast liðinn sunnudag. Þar kom hann inn á miklu fleiri atriði. Ræðan hans er komin á netið og geta menn hlustað á hana með því að smella á Upptökur hér að ofan.

Minnum svo á að á morgun kl. 18 er fjölskyldusamkoma fyrir alla fjölskylduna. Börnin hafa verið að læra vers úr 23. Davíðssálmi í haust og fróðlegt verður að sjá hvert Guð leiðir þau næst. Allir eru velkomnir. Stundin hefst kl. 18 eins og fyrr segir og stendur í klukkutíma.

Á fimmtudaginn kl. 20 er bænastund í kirkjunni. Þessar stundir hafa verið hreint frábærar og nærvera Guðs alveg meiriháttar. Hvetjum alla til að koma á þessar stundir.

03.10.2009 20:39

Tími til lofgjörðar

Brauðsbrotningin sl. fimmtudag hófst með lofgjörðarstund sem var frábær! Andi Guðs féll strax og góð stund var tekin til að lofasyngja Guði. Það er yndislegt að taka tíma til að lofa Guði og sjá hvað hann gerir gegnum lofgjörðina. Engin furða að Davíð konungur naut þessara stunda... Á brauðsbrotningunni var mikið beðið fyrir landi og þjóð en við erum sannfærð um að Guð hefur áætlun sem er til heilla fyrir landið okkar. Biðjum saman fyrir því að þessi áætlun (sem er til heilla fyrir þjóðina; munum að Guð er 100% kærleikur, hann er algóður) komi fram sem allra fyrst. Jarek Dudziak talaði síðan til okkar.
Á morgun kl. 14 verður aftur samkoma í kirkjunni. Þar munum við einnig lofa Drottin saman. Spennandi að sjá hvað gerist þá... Allir eru hjartanlega velkomnir!
  • 1
Flettingar í dag: 93
Gestir í dag: 30
Flettingar í gær: 380
Gestir í gær: 82
Samtals flettingar: 341438
Samtals gestir: 64543
Tölur uppfærðar: 20.5.2012 13:18:25

Þér hlið, lyftið höfðum yðar, hefjið yður, þér öldnu dyr, að konungur dýrðarinnar megi inn ganga.
Hver er þessi konungur dýrðarinnar? Drottinn hersveitanna, hann er konungur dýrðarinnar.
 
Sálmur 24 : 9 - 10

Hvítasunnukirkjan Kirkjulækjarkoti
861 Hvolsvöllur

Vefstjórar: Jarek Dudziak og Katrín M. Eiríksdóttir

Netfang vegna heimasíðu: katrinme (hjá) gmail.com