Fréttir
29.9.2009
Brauðsbrotning
Nú fer að styttast verulega í mánaðarmót en á fimmtudaginn er kominn október. Þá er líka kominn tími til að hafa brauðsbrotningu aftur en venjan er einmitt að nota fyrsta fimmtudagskvöld mánaðarins til þessa. Á fimmtudaginn kl. 20 verður því brauðsbrotning í kirkjunni en ekki hefðbundin bænastund. Vonandi sjá sem flestir sig fært að mæta.
27.9.2009
Vatni breytt í vín
Margir kannast við söguna um hvernig Jesús breytti vatni í vín (Jóhannesarguðspjall 2. kafli), en gæti hugsanlega verið að hægt væri að lesa meira úr þessari sögu? Sagan segir frá brúðkaupi sem Jesús var gestur í. Vín var mjög mikilvægur þáttur í brúðkaupum á þessum tíma og alveg óhugsandi að halda brúðkaup án víns. Þess vegna voru góð ráð mjög dýr þegar vínið kláraðist í fyrrnefndu brúðkaupi.
Vatn er lífgjafi. Það er ómögulegt að lifa án vatns. Við þurfum vatn að drekka og það þurfa dýr og plöntur líka. Vatn er því einnig lífgjafi, það hreinsar (ef við þvoum okkur upp úr því) og svo kemur það við sögu í skírninni. Í bruðkaupsveislunni lætur Jesús fylla tómu kerin með vatni. Svo biður hann um að aðrir fái að smakka og þá fer ýmislegt að gerast...
Það er frábært að fá að fyllast af Heilögum Anda. Hann vill fylla á tómu kerin okkar. Þegar við leyfum svo öðrum að smakka líka, þá breytast hlutirnir og vatnið ber að vera áhrifameira... Hollenski Steven, sem kemur frá YWAM-samtökunum (Youth With a Mission - stærstu kristniboðssamtök heims), talaði um þessa sögu í dag og sagði frá því hvað gerðist þegar vínsmakkarinn bragðaði á því sem var í kerunum. Við vitum ekki hvenær vatnið breyttist í vín, en við vitum hvenær það fór að hafa áhrif: Það var þegar öðrum var boðið að smakka... Ræðan er komin á netið. Þar er sagt frá miklu meiru sem Steven komst að þegar hann var að lesa Jóhannesarguðspjall. Fyrir þá sem hafa áhuga á að ná meira út úr lestri Biblíunnar, þá er gott að hlusta á þessa ræðu því þar koma áhugaverðir punktar sem hægt er að vinna með... Njótið vel!

26.9.2009
Komum saman!
Bænastundin sl. fimmtudag var frábær. Beðið var fyrir fjölmörgu og við gáfum okkur góðan tíma í það. Nærvera Guðs var svo sannarlega til staðar og stundin var yndisleg.
Á morgun sunnudag verður svo samkoma sem allir eru hvattir til að mæta á. Að þessu sinni fáum við gest til okkar frá Hollandi en hann starfar fyrir YWAM-samtökunum (Youth With a Mission). Hann mun tala á samkomunni og verður fróðlegt að heyra hvað hann vill deila með okkur. Sjáumst öll hress og kát kl. 14 á morgun!

24.9.2009
Blessun Guðs
Síðast liðinn sunnudag talaði Már Guðnason til okkar um þær blessanir sem Guð hefur lofað okkur (og það er ekkert smáræði!). Þessar blessanir eru ekki aðeins fyrir okkur persónulega heldur einnig fyrir þjóðina. Jóhannes byrjaði samkomuna á að lesa úr Harmljóðunum og var sú hvatning alveg í takt við predikun dagsins (fyrir þá sem mistu af þessu, þá er hægt að hlusta á hana á upptökusíðunni):
Þetta vil ég hugfesta, þess vegna vil ég vona: Náð Drottins er ekki þrotin, miskunn hans ekki á enda, hún er ný á hverjum morgni, mikil er trúfesti þín! Drottinn er hlutdeild mín, segir sál mín, þess vegna vil ég vona á hann. Góður er Drottinn þeim er á hann vona, og þeirri sál er til hans leitar. Gott er að bíða hljóður eftir hjálp Drottins. (Harmlj. 3.21-26)
Í kvöld er svo bænastund kl. 20. Hvetjum alla til að koma og biðja fyrir því sem okkur liggur á hjarta. Kannski verður hægt að klára lestur Opinberunarbókarinnar, en við eigum einn og hálfan kafla eftir (alltaf gaman að lesa endirinn á góðri bók!). Svo verður fróðlegt að sjá hvað taki við...

18.9.2009
Helgardagskráin
Hvað ætlar þú að gera um helgina? Það verður nóg um að vera í kirkjunni fyrir þá sem hafa áhuga.
Á morgun kl. 10 verður tveggja klukkustunda námskeið fyrir fólk sem hefur áhuga á að læra meira um predikun. Þetta er námskeið sem hefur það að markmiði að kenna fólki hvernig hægt er að setja saman og byggja upp predikun. Námskeiðið á morgun stendur í tvær klukkustundir en síðan munu þátttakendur fá verkleg verkefni til að leysa, til dæmis á fimmtudagsstund.
Milli kl. 12 og 17 á morgun verður bænastund í kirkjunni. Þar munum við koma saman til að biðja fyrir því sem liggur á hjarta okkar. Fólki er frjást að koma og fara. Þannig getur fólk stoppað eins lengi og það vill. Menn þurfa heldur ekki að mæta á slaginu 12 ef það hentar betur að mæta seinna.
Á sunnudaginn er samkoma kl. 14. Að þessu sinni mun Már Guðnason tala til okkar. Af því tilefni er gott að minna á mikilvægi þess að biðja fyrir samkomunum og ræðumönnunum. Það er hægara sagt en gert að setja saman ræðu og mjög mikilvægt að Guð fái að koma þar að. Besta leiðin fyrir okkur til að hjálpa þeim sem leiða samkomum og þjóna er að biðja fyrir þeim. Munum því að biðja fyrir forstöðumönnum, öldungum, þeim sem þjóna í lofgjörðinni og ræðumönnum. Mætum síðan á samkomu og njótum þess sem Guð vill deila með okkur.

17.9.2009
Bænastund
Minnum á bænastund kl. 20 í kvöld í kirkjunni. Aldrei að vita hvort við náum að klára Opinberunarbókina en við eigum þrjá kafla eftir af henni.
15.9.2009
Guð elskar þig!
Mannstu enn að Guð elskar þig? Hann elskar þig alveg eins og þú ert! Hann vill líka að þú vitir að hann elskar þig og að hann viljir þér allt vel. Annika Rosén talaði um kærleika Guðs til okkar og hvernig hann vill að við elskum hvert annað með sama kærleika. Ræðan hennar er komin á netið tilbúin til að þú getir hlustað á hana. Við viljum endilega að fólk hlusti á ræðurnar hér á síðunni :) Ef þú hefur notið þeirra, láttu okkur þá vita, annað hvort með því að kvitta fyrir komuna hingað (til dæmis í gestabókinni) eða með því að senda okkur póst (nth (hjá) simnet.is, yngre (hjá) simnet.is, jarek (hjá) hvolsskoli.is). Það er alltaf gaman að heyra ef einhver notar síðuna. Auðvitað má líka koma ábendingum á framfæri til okkar.
Á laugardaginn er svo námskeið fyrir þá sem vilja læra meira um predikun. Námskeiðið verður í kirkjunni milli kl. 10 og 12. Skráning fer fram hjá Jarek.
Eftir námskeiðið á laugardaginn verður svo bænastund frá hádegi til kl. 17, einnig í kirkjunni. Fólk er frjálst að koma og fara á þessu tímabili, enginn þarf að vera lengur en hann vill. Það er mikilvægt að koma saman og knýja á fyrir því sem okkur liggur á hjarta og þá sérstaklega þjóðina okkar sem svo sannarlega þarf á hjálp Guðs að halda núna. Komum saman og biðjum!

9.9.2009
Margt framundan
Nú er vetrarstarfið farið af stað í kirkjunni. Á sunnudögum er boðið upp á barnapössun meðan á samkomu stendur og í dag verður fyrsta fjölskyldusamkoma haustins. Hún hefst kl. 18 í kirkjunni og stendur í klukkustund. Fjölskyldusamkomurnar eru fyrir alla fjölskylduna en kennsla er miðuð við að ná sérstaklega til barna. Þau munu einnig fá fyrsta minnisversið í dag. Allir eru velkomnir.
Annað kvöld (fimmtudagur) verður brauðsbrotning kl. 20. Jarek mun tala á þeirri samkomu.
Laugardaginn 19. september nk. verður haldið námskeið fyrir þá sem hafa áhuga á að læra meira um predikun. Námskeiðið verður haldið í kirkjunni milli kl. 10 og 12. Þátttakendur munu einnig fá verklegar æfingar sem meðal annars geta falist í því að útbúa predikun fyrir fimmtudagsstund. Skráning fer fram í kirkjunni eða hjá Jarek (sjá netfang hér til hægri).
Síðast liðinn sunnudag talaði Þröstur til okkar og Chito var með vitnisburð. Mjög áhugaverð ræða sem hvetur okkur til að gera vilja Guðs. Hann hefur áætlun fyrir þjóðina okkar en hún hefst á áætlun Guðs með okkur sem einstaklinga. Ræðan er stutt og hnitmiðuð og því kjörið að hlusta á hana aftur ef þú ert ekki þegar búin/n að gera það. Hún er tilbúin á upptökusíðunni.
6.9.2009
Opinberunarbók
Á fimmtudagssamkomu kláruðum við 19. kafla í opinberunarbókinni. Jesús kemur sem sigurvegari til að enda yfirráð dýrsins og spámannsins! Og upp frá því byrjar Hans ríki á jörðinni, sem við lesum í 20. kafla á næstunni.
Næsta fimmtudag kl. 20:00 verður brauðsbrotning.

1.9.2009
Líttu upp!
Líttu upp og horfðu á Guð! Hann hefur áætlanir með okkur og þær eru stærri en við gerum okkur grein fyrir. Jósef, sem hafði verið svikinn af bræðrum sínum og endaði í fangelsi í fjarlægu landi, fékk drauma frá Guði. Það var hluti af áætlun Guðs. Jósef sá það kannski ekki þegar þetta var að gerast en það var samt hluti af áætlun Guðs. Þetta talaði Jarek einmitt um í ræðu sinni á sunnudaginn var. Gullý og Hinrik sögðu einnig frá starfi sínu í Afríku en þau eru einmitt að vinna í því að fá land fyrir skóla sem ABC barnahjálp rekur í Búrkína Fasó. Á upptökunni frá samkomunni á sunnudaginn er bæði ræðan hans Jareks en einnig frásögn þeirra Gullýjar og Hinriks af starfinu í Afríku. Þau sem vilja styrkja starfið fjárhagslega geta lagt inn pening á reikn. 182-26-62043, kt. 050948-4209. Sjóðurinn heitir Dignity (reisn) og er ætlunin að nota hann til að styðja við konur í Búrkína Fasó. Þær eru flestar ólæsar og margar mjög fátækar en með tilkomu sjóðsins verður hægt að hjálpa konunum til sjálfshjálpar.
Á fimmtudaginn verður brauðsbrotning í kirkjunni kl. 20. Það gleymdist að auglýsa hana á samkomunni en þá er bara að láta fréttirnar berast.

Flettingar í dag: 175
Gestir í dag: 55
Flettingar í gær: 218
Gestir í gær: 52
Samtals flettingar: 182190
Samtals gestir: 30095
Tölur uppfærðar: 5.9.2010 21:56:26