Fréttir
29.8.2009
Eining
Bænastundin sl. fimmtudag var mögnuð! Það er alveg órtúlegt hvað Guð gerir (og getur gert) þegar fólk kemur saman í Hans nafni, í einingu. Eins og Guð hefur lofað í sínu orði, þá er hann mitt á meðal þar sem fólk er saman komið í hans nafni. Eining er lykilatriði: Íþróttalið nær ekki árangri ef leikmennirnir vinna ekki saman. Þannig er það líka með kirkjuna. Við verðum afreksmenn um leið og við störfum saman í einingu. Ef Guð fær svo að leiða hópinn, þá verðum við sigurvegarar. En eining er, eins og áður segir, forsenda fyrir því að við náum árangri. Sameinuð stöndum við, sundruð föllum við, er stundum sagt.
Ekki náðist að lesa í Opinberunarbókinni, því Guð notaði allan tímann til að heiðra okkur með nærveru sinni. Við eigum því enn eftir að lesa kafla 20-22. Beðið var fyrir því sem okkur lá á hjarta en mesti tíminn fór þó í að láta Guð tala til okkar. Það er ekkert sem jafnast á við að vera í nærveru himneska Pabba okkar!
Á morgun mun Jarek Dudziak tala til okkar á samkomunni. Guð er búinn að deila hluti með Jarek sem hann ætlar síðan að deila með okkur. Samkoman byrjar kl. 14 og allir eru hjartanlega velkomnir.

26.8.2009
Fimmtudagsstundin
Viljum bara minna á bænastund annað kvöld (fimmtudagur) kl. 20. Gert er ráð fyrir að lesa kafla 20-22 í Opinberunarbókina. Hægt er að undirbúa sig með því að lesa heima en svo er aldrei að vita hvað Guð ætlar að gera á bænastundinni... Vonumst til að sjá sem flesta.
24.8.2009
Helgun
Í gær voru það hjónin Laufey Danivalsdóttir og Tómas Ibsen sem töluðu til okkar á samkomunni. Vitnisburðir þeirra voru hreint út sagt magnaðir. Þau hafa fengið stórkostlega opinberun sem þau ákváðu að deila með okkur. Það var samt ekki auðfengin opinberun en fyrir vikið er reynslan sem þau búa yfir í dag þeim mun áhrifameiri. Helgun var nokkurs konar yfirskrift samkomunar og ræða Tómasar fjallaði einmitt um að helga sig með því að gera hreint fyrir sínum dyrum. Fyrirgefnin er lykill inn í þessar aðstæður og hún getur leyst út blessun fyrir okkur og fyrir þjóð okkar.
Þessi ræða er mögnuð og skorað er á alla sem lesa þetta að hlusta á hana, jafnvel tvisvar eða þrisvar. Hún gæti breytt lífi þínu svo um munar!
22.8.2009
Síðast liðinn fimmtudag var bænastund eins og venjulega. Við tókum okkur góðan tíma til að biðja fyrir því sem okkur lá á hjarta áður en lesturinn í Opinberunarbókinni hófst. Í ljós kom að við vorum búin að skoða 17. og 18. kafla en ákveðið var að renna yfir textann aftur og lesa síðan kafla 19 á eftir. Við ræddum um efni kaflana og veltum fyrir okkur merkinguna. Næst stendur til að taka fyrir kafla 20 og 21 en svo er aldrei að vita nema við klárum bara bókina þá.
Á morgun verður samkoma í kirkjunni okkar kl. 14. Allir eru hjartanlega velkomnir!
Á morgun verður samkoma í kirkjunni okkar kl. 14. Allir eru hjartanlega velkomnir!
19.8.2009
Bænastund
Annað kvöld kl. 20 verður bænastund í kirkjunni í Kirkjulækjarkoti. Síðastliðinn fimmtudag var stund alveg ótrúleg! Nærvera Guðs var mjög sterk og virkilega yndislegt að fá að upplifa þetta. Spennandi verður að sjá hvað Guð ætlar að gera annað kvöld. Síðast gafst ekki tími til að lesa í Opinberunarbókina og því eigum við enn eftir að fara yfir kafla 17 og 18 (gott að lesa þá heima fyrir stundina...). Vonumst til að sjá sem flesta á stundina annað kvöld.
18.8.2009
Námskeið fyrir verðandi prédikara
Nú í haust stendur til að bjóða upp á námskeið fyrir þá sem hafa áhuga á að prédika. Þetta er námskeið sem er ætlað byrjendum og þeim sem hafa tekið sér langt hlé og þurfa upprifjun. Námskeiðið verður tvískipt: Í fyrri hlutanum verður farið yfir praktísk atriði tengd prédikunum og uppbyggingu þeirra. Seinni hlutinn er meira praktískur, jafnvel með verklegum æfingum.
Þetta er sem sagt námskeið sem kemur til með að standa yfir í allt haust en hugmyndin er að byrja í september. Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í slíku námskeiði eða vilja fá fleiri upplýsingar hafi samband við Jarek (jarek(hjá]hvolsskoli.is).

16.8.2009
Sálmur 95
Lofgjörð einkenndi samkomuna í dag. Litla hljómsveitin okkar leiddi í söng og margir kunnu að njóta lofgjörðar til Guðs. Hópurinn frá Oak Hall (sem nefndur var til sögunnar síðast) söng síðan fyrir okkur tvö lög.
Það var hann Howard sem fer fyrir Oak Hall-hópnum sem talaði á samkomunni í dag. Hann fór með okkur í gegnum 95. Davíðssálmi og benti á ýmislegt athyglisvert tengt þessum sálmi. Meðal annars minnti hann okkur á að Guð kallar og það er okkar að hlýða kalli Guðs. Við eigum mun auðveldara að treysta manneskju sem stendur við því sem hún lofar. Þannig er það líka með Guð. Hann treystir því að við hlustum þegar hann kallar og sá sem hlýðir kallinu, hann getur Guð notað til að gera meiri og stærri verk. Viljum við hlýða? Okkar er valið. Guð er búinn að kalla... Upptakan frá samkomunni er komin inn á upptökusíðunni (smelltu á Upptökur hér að ofan). Njóttu vel! Það er blessun að hlusta á þessa ræðu.

14.8.2009
Guð er hjá okkur
Hvar er Guð? Á himnum? Hjá ríka fólkinu? Í felum í fjallendi Rússlands? Svarið er einfallt: "Meistarinn er hér og vill finna þig." Guð er hér hjá okkur og hefur lofað að þar sem tveir eða þrír eru saman komnir í hans nafni, þar mun hann vera mitt á meðal (Matt. 18.20). En hann vill líka vera hjá okkur þegar við erum ein. Það er einmitt tíminn sem við erum ein með Guði sem er svo dýrmætur. Ekki bara fyrir hann heldur fyrir þig líka. Þá fær hann óskipta athygli okkar.
Bænastundin í kirkjunni í gær var hreint út sagt frábær! Guð mætti og var svo sannarlega mitt á meðal okkar. Ekki gafst tími til að lesa í Opinberunarbókinni því í gærkvöldi var greinilega tími til að biðja og dvelja í nærveru hans. Við höldum bara áfram þar sem frá var horfið næst. Nærvera Guðs var mjög sterk á stundinni í gær og alveg ótrúlegt að fá að upplifa slíkt. - Og það var ekki vegna fjöldans sem Guð kom... (við höfum núorðið reynslu af því að fámennustu bænarstundirnar séu oft þær mögnuðustu). Fyrir þá sem langar í slíka bænastund aftur, þá er um að gera að mæta á fimmtudögum kl. 20. Vegir Guðs eru órannsakanlegir og því er ekki hægt að auglýsa það með fyrirvara þegar slík stund verður eins og ígær. Þú verður bara að kíkja til okkar!
Á sunnudaginn verður samkoma kl. 14 eins og venjulega. Um þessar mundir er hópur í heimsókn frá Oak Hall, en Oak Hall er kristileg ferðaskrifstofa sem skipuleggur ferðir meðal annars til Íslands. Árlega kemur hópur frá þeim í heimsókn. Á sunnudaginn mun fararstjóri þeirra tala til okkar á samkomunni. Því mun samkoman fara fram bæði á íslensku og ensku. Kjörið að taka með sér gesti sem ekki skilja íslensku :).

9.8.2009
Án skilyrða
Vissir þú að Guð elskar þig án skilyrða? Sigurður Ágústsson talaði til okkar á samkomunni í dag og sagði okkur frá eigin reynslu af því sem Guð hefur verið að gera í sínu lífi og hvernig Guð elskar okkur án skilyrða. Guð langar svo að elska okkur og hann langar að áætlun sín (sem er til heilla en ekki til óhamingju - Jer.29.11) nái fram að ganga í lífum okkar. Spurningin er bara hvort okkur langi það líka.
Á samkomunni í dag var fjölmennur hópur erlendra gesta sem eru hér á vegum Oak Hall. Ræðan var því túlkuð á ensku en Þröstur Sigfússon sá um það. Ef þú átt 20 mínútur aflögu (og það áttu örugglega ef þú athugar aðeins), þá skaltu taka þér tíma og hlusta á þessa yndislegu ræðu Sigga. Hún gæti breytt lífi þínu svo um munar...

8.8.2009
Selfyssingar þjóna
Nú tekur við hefðbundin dagskrá á sunnudögum með samkomu kl. 14. Að þessu sinni munu Ragnheiður og Sigurður frá Selfossi koma og þjóna til okkar í söng og orði. Ragnheiður og Siggi þjónuðu einnig á Kotmótinu ásamt fleirum og kannski hafa mótsgestir tekið eftir þeim þar. Allir eru hjartanlega velkomnir á samkomuna á morgun.
Flettingar í dag: 191
Gestir í dag: 56
Flettingar í gær: 218
Gestir í gær: 52
Samtals flettingar: 182206
Samtals gestir: 30096
Tölur uppfærðar: 5.9.2010 22:19:22