Fréttir
29.7.2009
Aðstoðarhópur á kotmóti
Nú styttist í kotmót og það er mikilvægt að vita sem fyrst hvort þú vilt vera með í að hjálpa við alls konar verkefni fyrir hönd kirkju okkar.
Ef þú vilt vera með hringdu í Jarek 6952436.
Takk fyrir alla þjónustu þína í Guðs ríki!

28.7.2009
Kotmót
Nú styttist óðum í Kotmót. Dagskrá mótsins má finna á http://kotmot.123.is. Í kvöld og annað kvöld verða bænastundir í kirkjunni þar sem við munum lofa Guð saman og biðja fyrir Kotmóti. Stundirnar hefjast kl. 20 og allir eru velkomnir.
Handverksfólk, nú fer hver að verða síðastur til að klára muni fyrir handverksmarkaðinn á Kotmóti. Heimabakað góðgæti er einni vel þegið. Hafið samband við Rebekku Jónasdóttur (s. 487-7827 og 898-7827) til að fá nánari upplýsingar um markaðinn.
Svo er ræða sunnudagsins komin inn á netið. Smelltu á 'Upptökur' hér að ofan. Síðan má smella á 'Skoða myndband' til að hlusta á upptökuna.

26.7.2009
Eldhúsdagur
Síðastliðinn föstudag var komið saman til að taka til í kirkjunni. Það er komið nýtt eldhús í kirkjunni og á föstudaginn var svo raðað inn í skápa og skúffur, allt þrifið og yfirfarið. Loftstofan var líka tekin í gegn og þrifin og byrjað var á tiltekt niðri í aðalsalnum. Eftir samkomu í dag var svo boðið upp á kaffi og eldhúsið "formlega" tekið í notkun. Fyrir þá sem ekki hafa séð nýja, hvíta eldhúsið, þá er um að gera að kíkja til okkar á samkomu.
Í dag var tvíréttað á samkomunni enda tvær ræðukonur að þessu sinni, Kristín Dudziak og Katrín Eiríksdóttir. Verið er að klippa ræðurnar til og fara þær inn á vefinn við fyrsta tækifæri.
Nú styttist óðum í Kotmót. Kotmót stendur frá fimmtudeginum 30. júlí til mánudagsins 3. ágúst nk. og eru allar samkomur uppi í Örkinni í Kirkjulækjarkoti. Dagskrá og fleiri upplýsingar eru á kotmot.123.is. Fyrsta samkoman verður á fimmtudaginn kl. 20 og eru allir hjartanlega velkomnir. Minnum svo á Andraé Crouch-tónleika í Örkinni á sunnudeginum kl. 22. Miðasala er á hljómar.is og hjá Hvítasunnukirkjunni Fíladelfíu í Reykjavík. Engar samkomur verða í kirkjunni í Kirkjulækjarkoti um næstu helgi heldur er fólk hvatt til að mæta á Kotmót í staðinn. Ókeypis er inn á svæðið en hægt er að tjalda gegn gjaldi.
Vegna Kotmóts verða bænarstundir í kirkjunni í Kirkjulækjarkoti á mánudaginn (á morgun), þriðjudaginn og miðvikudaginn kl. 20. Þar munum við koma saman og biðja fyrir mótinu. Allt bænafólk er eindregið hvatt til að að mæta á þessar bænastundir (og karlar: Hvetjum ykkur sérstaklega til að koma ;) ).

22.7.2009
Ræðan komin á netið
Þá er ræðan hans Paulos um köllun komin á netið (smellið á upptökur hér að ofan). Á þessari upptöku má einnig heyra tilkynningar, orð úr Biblíunni og bæn.
Minnum svo á bænastundina annað kvöld kl. 20. Ef tími vinnst til verður væntanlega lesið í Opinberunarbókinni og þá 15. og 16. kafla. Svo er tiltektardagur í kirkjunni á föstudaginn. Hann hefst kl. 13 og eru allir hjálpfúsir hjartanlega velkomnir.

21.7.2009
Köllun
Paulo Sicoli talaði um köllun á samkomu sl. sunnudag. Hver er köllun þín? Kristnir menn eru kallaðir til að segja öðrum frá Jesú en við erum líka með aðra köllun. Það getur verið að vera kennari, trúboði, hirðir eða eitthvað annað og það er mjög mismunandi hvar við eigum að sinna þessari köllun okkar. Veist þú til hvers þú ert kallaður/kölluð? Paulo hvatti okkur til að leita Guðs, spyrja hann hvað eigi að gera. Guð mun svara og þá er það okkar að hlýða því kalli. Því miður hefur ekki náðst að klippa ræðuna han Paulos til ennþá en hún er væntanleg á netið á næstu dögum.
Á fimmtudaginn er að venju bænastund kl. 20.
Næstkomandi föstudag verður tiltektardagur í kirkjunni. Tiltektin hefst kl. 13 og eru allir sem tök hafa á að koma hvattir til að mæta. Það þarf að fara yfir fullt af dóti, taka til og gera kirkjuna okkar fallega.

18.7.2009
Vakið!!
Bænastundin sl. fimmtudag var yndisleg. Eftir það var 14. kafli Opinberunarbókarinnar lesin og rædd. Mörg smáatriði fengu nýja merkingu í umræðunni um efni kaflans og vers, sem áður höfðu verið ómerkileg, voru skoðuð í nýju ljósi. Ljóst er að merkilegir hlutir eru framundan en Drottinn mun sjá fyrir sínum. Niðurstaða umræðunnar var að mikilvægt er fyrir kristið fólk að vera vakandi, sofna ekki á verðinum, því það verður afdrifaríkt að gera slíkt. Nauðsynlegt er að lesa Biblíuna, þekkja það sem í henni stendur, þekkja Guð og treysta honum til að lenda ekki í vandræðum seinna.
Himinn og jörð munu líða undir lok, en orð mín munu aldrei undir lok líða.
"Himinn og jörð munu líða undir lok, en orð mín munu aldrei undir lok líða. Hafið gát á sjálfum yður, að hjörtu yðar þyngist ekki við svall og drykkju né áhyggjur þessa lífs og komi svo dagur sá skyndilega yfir yður eins og snara. En koma mun hann yfir alla menn, sem byggja gjörvalla jörð. Vakið því allar stundir og biðjið, svo að þér megið umflýja allt þetta, sem koma á, og standast frammi fyrir Mannssyninum." (Jesús Kristur í Lúk. 21.33-36).
Á morgun sunnudag, mun brasilíski bróðir okkar Paulo Sicoli tala. Paulo hefur mjög góða þekkingu á Biblíunni og áhugavert er að hlusta á þegar hann talar um texta úr Biblíunni. Síðast sagði hann okkur frá Jónasi sem vildi ekki fara með orð frá Guði til Níníve-búa (sjá Jónasarbók í Gamla Testamentinu). Spennandi verður að sjá hvað Paulo hefur að segja frá á morgun.

16.7.2009
Bænastund
Síðast liðinn sunnudag talaði Jarek til okkar um meðal annars samskipti. Skorum á fólki að hlaða niður ræðuna og hlusta á hana. Eyrún Ósk las fyrir okkur úr Orði Guðs.
Í kvöld verður að venju bænarstund kl. 20. Síðast var mjög hefðbundin bænastund og ekki vannst tími til að lesa í Opinberunarbókinni. Ef Guð lofar, þá verður lestri og umræðum haldið áfram í kvöld. Komið er að því að skoða kafla 14 og 15. Mælt er með því að lesa kaflana yfir heima fyrir stundina til að fá sem mest út úr umræðunum.
Minnum svo handverksfólk á að haldinn verður markaður með handverki til styrktar Örkinni. Hægt er að hafa samband við Rebekku Jónasdóttur, símar 487-7827 og 898-7827, til að fá frekari upplýsingar.

11.7.2009
Sunnudagur framundan
Á morgun kl. 14 verður að venju samkoma hjá okkur í Kotinu. Að þessu sinni mun Jarek Dudziak tala til okkar en Guð hefur verið að deila nýja hluti með honum.
Nú fer senn að líða að Kotmóti. Enn er unnið að framkvæmdum við Örkina og það kostar að sjálfsögðu pening. Af því tilefni er komin upp hugmynd um að setja upp handverksmarkað til fjáröflunar. Ef þú kannt að prjóna, smíða, gera sultu, vinna úr leir, baka eða eitthvað annað, þá er tækifæri til að leggja handverksmarkaðnum lið með því að útbúa vörur fyrir hann. Rebekka Jónasdóttir veitir nánari upplýsingar í síma 487 7827. Hvetjum alla til að taka þátt í þessari fjáröflun.

8.7.2009
Ræðan komin á netið
Síðast liðinn sunnudag kom hann Óskar til okkar í Kotinu og talaði til okkar. Hann hefur verið í Biblíuskóla í Redding í Bandaríkjunum í vetur og vakti mikla athygli þar fyrir fjölda kraftaverka sem hann sá. Hann kom víða við í ræðu sinni en hún er aðgengileg hér á síðunni núna. Mæli eindregið með að hlusta á þessa mjög svo merkilega ræðu. Upptakan hefst á vitnisburði Emmu Rosén en hún er að aðstoða við að koma Catch the Fire-kirkju af stað í Noregi. Rebekka Jónasdóttir sagði fréttir af Örkinni og síðan er uppörvunarorð frá Anniku Rosén áður en við hlýðum á ræðu Óskars. Njótið vel!
3.7.2009
"Ég er vegurinn, sannleikurinn og lífið" - Jesús Kristur
Langar þig að láta ljúga að þér? Nei, er það nokkuð. En hvernig veit maður hvort fullyrðing er lýgi? Nauðsynlegt er að þekkja sannleikann. Djöfullinn er meistari í að ljúga. Það sem verra er er að við trúum stundum því sem hann segir. Það er nauðsynlegt fyrir okkur að þekkja sannleikann svo við vitum þegar djöfullinn reynir að ljúga að okkur. Hinir kristnu eru sigurvegarar í þessari baráttu ef við látum ekki bugast þegar djöfullinn reynir að ná til okkar. Fyrir þá sem ekki komust á brauðsbrotningu í gær þá er ræðan aðgengileg á upptökusíðunni. Allir eru hvattir til að hlusta á þessa mikilvæga kennslu. Þær fæst meðal annars svar við hvernig við sigrum djöfulinn.
Á sunnudaginn mun Óskar Guðssonur tala til okkar. Hann er nýkominn úr biblíuskóla í Redding í Bandaríkjunum. Þeir sem hlusta reglulega á útvarpsstöðina Lindina hafa kannski heyrt viðtal við ungan mann í síðustu viku en þar var sagt frá hluta af því sem gert er í þessum biblíuskóla. Óskar kemur eldhress frá Bandaríkjunum og hefur örugglega mjög spennandi hluti að deila með okkur. Allir eru hvattir til að mæta á samkomuna. Hún hefst klukkan 14 og á eftir verður kaffi í loftstofunni að samkomu lokinni (vonandi taka menn eftir breytingum í eldhúsinu í kirkjunni...).

Flettingar í dag: 175
Gestir í dag: 55
Flettingar í gær: 218
Gestir í gær: 52
Samtals flettingar: 182190
Samtals gestir: 30095
Tölur uppfærðar: 5.9.2010 21:56:26