Fréttir

29.6.2009

Brauðsbrotning

Næstkomandi fimmtudag verður brauðsbrotning enda fyrsti fimmtudagur júlímánaðar. Stundin hefst að venju klukkan 20 og eru allir hvattir til að mæta.

Skrifað 29.6.2009 kl. 22:35 af Katrínu

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

29.6.2009

Elska af öllu hjarta

Jesús sagði: "Elska skalt þú Drottinn, Guð þinn, af öllu hjarta þínu, allri sálu þinni og öllum huga þínum." (Matt.22.37) Hjartað er táknmynd upp á lífið. Við tölum líka um hjarta þegar við tölum í andlegum skilningi. Í Biblíunni er sagt frá Davíð konungi en hann var maður eftir Guðs hjarta. Davíð elskaði Guð meira en nokkuð annað. Davíð var vinsæll, ríkur og valdamikill, en samt var Guð mikilvægastur í lífi hans. Ef Guð er mikilvægari en vinsældir, auð og völd, hve stór og hve mikilvægur er þá Guð? Langar þig til að elska Guð meira? Langar þig að dragast nær Guði? Líka þú sem hefur elskað Guð í áratugi? Eða þú sem kynntist honum í gær? Hlustaðu á ræðu Sigþrúðar Tómasdóttur (Sissú) en hún talaði um þetta á samkomunni í gær. "En það er hið eilífa líf að þekkja þig, hinn eina sanna Guð, og þann sem þú sendir, Jesú Krist." (Jóh. 17.3) Fyrir þá sem voru á samkomunni í gær, þá er mikill leyndardómur fólginn í því að rifja upp, hlusta aftur.

Eftir samkomu var farið í Þorsteinslund. Þar komu menn saman til að spjalla og börnin til að leika sér. Unnið er að endurbótum á eldhúsinu í kirkjunni og því var ekki hægt að hafa kaffi eftir samkomu þar. Þess vegna var búið að biðja Guð um að gefa okkur gott veður þennan dag. Það var hlýtt og gott í Hlíðinni en skúr kom um morgunin fyrir samkomu. Menn voru glaðir þegar í ljós kom að mun minna rigndi inni í Fljótshlíð en á Hvolsvelli og nágrenni.

Skrifað 29.6.2009 kl. 12:56 af Katrínu

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

26.6.2009

Samkoma og lautarferð

Á sunnudaginn verður að venju samkoma í kirkjunni í Kirkjulækjarkoti kl. 14. Að þessu sinni mun Sigþrúður Tómasdóttir, eða Sissú eins og margir þekkja hana, tala til okkar. Að samkomu lokinni stendur til að fara inn í Þorsteinslund sem er innar í Fljótshlíðinni. Samkomugestir eru beðnir að hafa taka með sér kaffi og með því til að neyta í lundinum. Munum svo líka að biðja Guð um gott veður, því það er skemmtilegra að fara í slíka ferð ef veðrið er gott.

Fyrir þá sem eru á leiðinni norður í land, þá er Sumarmót Hvítasunnumanna haldið á Akureyri um þessa helgi. Þar verður margt í boði fyrir alla fjölskylduna. Dagsrká og fleira má skoða hér.

Skrifað 26.6.2009 kl. 12:41 af Katrínu

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

25.6.2009

Vefsíða pólskra kristinna á Íslandi

Gott að minna á það að út frá starfinu í Kotinu starfar pólsk kristilegt samfélag.

Við erum með vefsíðu á pólsku (www.123.is/polacy; hún er einnig í tenglum hægra megin), þannig að þú gætir fylgst með starfinu með því að smella á Google Translate hægra megin á síðunni og valið tungumál sem þú skilur. Það er því miður ekki hægt að velja íslensku en það er í boði t.d. önnur norðurlandatungumál, enska, spænska, portúgalska, o.fl.

Góða skemmtun!

Skrifað 25.6.2009 kl. 16:45 af Jarek

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

24.6.2009

Örkin - ný síða

Veistu hvað Örkin er? Í Kirkjulækjarkoti er stór samkomuhöll sem kallast Örkin. Hún var reist fyrir um 15 árum síðan. Í Örkinni eru meðal annars haldin mót, meðal annars Kotmótið um verslunarmannahelgina sem um 3000 manns sækja ár hvert. Þar eru tveir samkomusalir og stórt fjölnota svæði í miðjunni. Hér að ofan er kominn nýr flipi/takki sem heitir 'Örkin' en þar hefur Rebekka Jónasdóttir sett inn upplýsingar um Örkina.
Örkin var klædd að utan á sínum tíma en hægara hefur gengið að klára hana að innan. Það er draumur mjög margra að sjá Örkina fullkláraða að innan. Við viljum hvetja alla til að sameinast okkur í bæn fyrir Örkina og að Guð megi leysa út fjármagn og leiðir til að klára Örkina sem allra fyrst. Við væntum þess að sjá kraftaverk. Vilt þú leggja okkur lið og sjá kraftaverkin gerast? Biddu þá með okkur og vertu opin(n) þegar Guð talar til þín.

Minnum á bænastund annað kvöld (fimmtudagur) kl. 20. Undanfarið höfum við lesið í Opinberunarbókinni. Að þessu sinni stefnum við á að fara yfir kafla 12 og 13 og því er gott að undirbúa sig með því að lesa þá yfir heima fyrir stundina. Hvetjum alla áhugasama til að mæta.

Skrifað 24.6.2009 kl. 20:14 af Katrínu

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

22.6.2009

"Þú átt bara að vera góður"

Hjónin Berglind og Valdimar frá Reykjavík þjónuðu á samkomu í gær. Berglind söng lagið Imagine (eftir meðlimi hljómsveitarinnar Mercy Me) fyrir viðstadda. Það fjallaði um hugleiðingar um hvernig við munum bregðast við þegar við komum til himna.
Síðan talaði Valdimar. Hann talaði um Guð, hvernig hann fyrirgefur syndir okkar án þess að fordæma okkur þegar við misstígum okkur á göngunni með honum. Guð biður okkur um að velja að gera bara góða hluti. Hann er ekki að ætlast til þess að við séum fullkomin og hann gefst ekki upp þó svo að við mennirnir klikkum stundum á að gera það sem er rétt. Til að komast að því hvernig Spiderman og raðgreiðslur tengjast þessu er nauðsynlegt að hlusta á ræðuna (það var mikið hlegið á samkomunni enda hefur Valdimar gott lag á að koma boðskap skemmtilega frá sér. Hefði þurft að greiða fyrir niðurhal á þessari ræðu hefðum við eflaust boðið upp á endurgreiðslu fyrir þá sem ekki kunna að meta húmorinn hjá Valda).

Síðast liðinn fimmtudag kom Indriði Kristjánsson í heimsókn. Indriði er búsettur í Kanada þar sem hann fer fyrir hjálparstarfi sem sendir mat og hjálpargögn til margra landa (sjá heimasíðu: www.gemsbc.org). Indriði syndi myndir og sagði frá starfi samtaka sinna, hvernig Guð leiðir starfinu og gerir kraftaverk gegnum þjónustuna. Það voru hreint yndislegar sögurnar af því hvernig fólk hefur fengið hjálp á hárréttum tíma. Indriði talaði síðan til okkar út frá sögu um ekkju, sem Guð sá algerlega fyrir (2. Kon.4.1-7). Upptaka af ræðu Indriða liggur tilbúin til niðurhals á upptökusíðunni. Hvetjum alla til að hlusta á boðskapinn. Hann var mjög merkilegur og á svo sannarlega erindi til margra.

Næsta sunnudag verður ekki kaffi eftir samkomu. Í staðinn ætlum við að fara í Þorsteinslund innar í Fljótshlíðinni og eiga skemmtilega stund saman. Allir eru hvattir til að koma með eitthvað með sér í kaffið.

Skrifað 22.6.2009 kl. 9:23 af Katrínu

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

17.6.2009

Gleðilega hátíð

Þá er aftur kominn 17. júní og það líklega í 65. sinn eftir að lýðveldið var stofnað... Þetta er dagurinn þar sem fánanum okkar er flaggað og þjóðsöngurinn sunginn víða (alla vega fyrir leik Íslendinga í handbolta seinna í dag). Ísland ber merki þess að vera kristið land. Á fánanum er mynd af krossi og í hvert skipti sem fáninn er dreginn að húni þá ber hann vitni um að Jesús dó á krossi fyrir syndir okkar svo við mættum lifa þrátt fyrir synduga eðli okkar. Þjóðsöngurinn er einnig lofsöngur til Guðs: "Ó Guð vors lands...". Sjö af boðorðunum tíu sem Guð upphaflega gaf Móse snúa að samfélagi okkar við annað fólk. Þessi boðorð eru enn ofarlega í huga okkar. Til dæmis þykir hér ekki rétt að stela, segja ósatt eða verða öðrum að bana. En þó svo að kristnar táknmyndir og kristin gildi eru augljós hér, þá er ekki þar með sagt að öll þjóðin sé kristin. Meðan svo er ekki eru enn verk að vinna. Á þessum tímum sem við lifum á, þar sem erfiðleikar eru að finna mjög víða, þá er aðeins einn staður til þar sem fullkomnlega öruggt er að dvelja. Það er hjá honum sem er örugg hjálp í nauðum (Sálmur 46.2). Þess vegna skulum við halda áfram að syngja: "Jesús, þú átt þetta land."

Annað kvöld, fimmtudaginn 18. júní, mun Indriði Kristjánsson tala á bænastund í kirkjunni. Indriði er búsettur í Kanada en er í heimsókn hér sem stendur. Stundin hefst kl. 20 og allir eru hvattir til að mæta.

Ræðurnar frá því á sunnudaginn var (Christina og Gylfi) og sunnudeginum þar áður (Jón Þór Eyjólfsson) eru komnar á netið. Vegna tölvuvandamála reyndist ekki hægt að koma þeim inn fyrr en beðist er velvirðingar á því. Þær eru hins vegar komnar núna og eru tilbúnar til niðurhals á upptökusíðunni. Góða skemmtun!

Skrifað 17.6.2009 kl. 15:21 af Katrínu

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

15.6.2009

Treystum Guði

Líkt og venjulega á sunnudögum var samkoma í kirkjunni Kirkjulækjarkoti í gær. Christina Bengtson var með vitnisburð og Gylfi Markússon fjallaði um það að treysta Guði og þjóna ekki tveimur herrum (Mattheus 6.24-34). Guð hefur lofað að sjá um okkur, en til þess að hann geti gert það, verðum við að leyfa honum að komast að. Manneskja sem vill að Guð leiði sig getur ekki haft stjórnina á sama tíma (ekkert frekar en sá í farþegasætinu í bílnum getur ekið bílinn á sama tíma...). Vitnisburðurinn og ræðan verða sett á netið á næstu dögum. Tilkynning kemur þegar það gerist.

Á fimmtudaginn verður að venju stund í kirkjunni kl. 20. Indriði Kristjánsson sem búsettur er í Kanada mun tala til okkar þá. Hvetjum alla til að koma.

Skrifað 15.6.2009 kl. 8:37 af Katrínu

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

12.6.2009

Sumarið er komið

Sumarmæting var á bænastund í gær. Stundin var góð, við lofuðum Guði, báðum og lásum í Opinberunarbókinni. Að þessu sinni voru það 10. og 11. kafli sem voru til umræðu. Þar er sagt frá því sem framundan er hjá okkur. Ljóst er að menn þurfa að taka afstöðu með eða á móti Guði. Guð mun sýna dýrð sína og mátt en menn munu taka þessu misvel. Loforðin fyrir börn Guðs mega ekki gleymast. Hann hefur meðal annars lofað að þeir sem fylgja Guði munu fá að lifa hjá Guði um eilífð.

Síðast liðinn sunnudag talaði Jón Þór Eyjólfsson til samkomugesta. Með honum voru fulltrúar úr bifhjólasamtökunum Trúboðar, en það eru samtök kristinna bifhjólamanna. Ræðan hans verður aðgengileg hér á síðunni eftir helgina.

Skrifað 12.6.2009 kl. 15:01 af Katrínu

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

6.6.2009

Már prédikaði...

Á brauðsbrotningarsamkomu myndi okkur Már á mikilvægi þess að dýpka sambandið okkar við Guð og stækka rými í lífum okkar fyrir bæn. Upptækan verður bráðum aðgengileg.

Eins og vanalega á sunnudaginn kl. 14:00 er aðalsamkoma í Kirkjulækjarkoti. Jón Þór prédikar og Hinrik leiðir samkomuna. Allir hjartanlega velkomnir.

Skrifað 6.6.2009 kl. 9:20 af Jarek

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

3.6.2009

Brauðsbrotning

Skoða nánar

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 191
Gestir í dag: 56
Flettingar í gær: 218
Gestir í gær: 52
Samtals flettingar: 182206
Samtals gestir: 30096
Tölur uppfærðar: 5.9.2010 22:19:22

Þér hlið, lyftið höfðum yðar, hefjið yður, þér öldnu dyr, að konungur dýrðarinnar megi inn ganga.
Hver er þessi konungur dýrðarinnar? Drottinn hersveitanna, hann er konungur dýrðarinnar.
 
Sálmur 24 : 9 - 10

Hvítasunnukirkjan Kirkjulækjarkoti
861 Hvolsvöllur

Vefstjórar: Jarek Dudziak og Katrín M. Eiríksdóttir

Netfang vegna heimasíðu: katrinme (hjá) gmail.com