Fréttir

18.8.2010

Gestir frá Kanada

Í gær og í dag höfum við notið heimsóknar frá Kanada. Indriði Kristjánsson ásamt föruneyti er í heimsókn hjá okkur og munu þeir þjóna til okkar á samkomu í kvöld. Vegna þessa mun bænastundin á morgun fimmtudag, falla niður. Að venju er samkoma á sunnudaginn kl. 14. Allir eru að sjálfsögðu hjartanlega velkomnir á samkomurnar.

Skrifað 18.8.2010 kl. 20:00 af Katrínu

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

15.8.2010

Gestir í Kirkjulækjarkoti

Undanfarið höfum við notið þeirrar blessunar hér í Kirkjulækjarkoti, að fá heimsóknir héðan og þaðan. Fyrir viku kom hópur fólks sem tengist World Horizons samtökunum hingað í heimsókn. Markmið World Horizons er að breiða út fagnaðarerindið til þjóða heims og þá sérstaklega þeirra sem ekki hafa fengið að heyra fagnaðarerindið ennþá (sjá nánar á www.worldhorizons.co.uk). Við fengum að heyra kveðjur á ólíkum tungumálum og svo fengum við orð, hvatningu og vitnisburði frá fólki í hópnum.
Í dag þjónaði til okkar hópur fólks sem er hér á landi á vegum Oak Hall (sjá nánar á www.oakhall.co.uk). Hópurinn hefur verið hér í rúma viku og í dag var svo komið að því að hópurinn syngi fyrir okkur. Howard, sem fer fyrir hópnum, talaði svo til okkar. Ræðan hans fjallaði um miskunnsama Samverjan (Lúkas 10. kafli) og hvernig Jesús notaði þá ræðu sem áskorun fyrir þá sem á hann hlýddu. Howard gaf sér tíma til að útskýra eitt og annað tengt menningunni á tímum Jesú. Það útskýrði heilmikið um hve mikil áskorun það í raun er að fylgja Jesú. Guð er sífelt að spyrja okkur hve langt við erum tilbúin að ganga fyrir Hann. Hann skorar á okkur á hverjum degi. Presturinn og levítinn sem gengu framhjá særða manninum í líkingunni um miskunsama Samverjan, hefðu óhreinkað sér með því að hjálpa særða manninn. Samverjinn tók þá áhættu, hann valdi að ganga frekar gegn þeim lögum og gildum sem hann trúði á til að aðstoða náunga í nauð. Lögvitringurinn (sem var Gyðingur og ætlaði reyndar að prófa Jesú í von um að hann myndi fordæma eigin kenningu) varð að játa að það var Samverjinn sem hafði gert það sem Guð vildi en ekki Gyðingarnir. Þannig erum við sjálf prófuð. Hvað erum við tilbúin að gera fyrir Guð (eða réttara með Guði, því ekki viljum við gera neitt í eigin mætti heldur viljum við hafa Guð með okkur og þá gerum við væntanlega hlutina með honum...)?

Á þriðjudaginn og miðvikudaginn kl. 20 verður samkoma hér í Kirkjulækjarkoti. Indriði Kristjánsson frá Kanada mun þjóna til okkar ásamt hópi fólks sem er með honum í för. Gestagangurinn hér er því ekki búinn enn, en við hvetjum alla sem hafa tök á að koma í kirkjuna og njóta þess sem gestir okkar vilja færa okkur.

Skrifað 15.8.2010 kl. 16:30 af Katrínu

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

27.7.2010

Agi...

Jæja, þú hafðir það af að lesa meira en bara fyrirsögnina. Það eru margir sem hafa lítinn áhuga á aga. Sérstaklega þegar Guð á í hlut. Fæstum finnst gott að þurfa að láta aga sig en flestir, ef ekki allir foreldrar geta þó játað að agi sé bæði nauðsynlegur og uppbyggjandi sem honum beitt rétt. Þannig læra flest börn hvað sé gott að gera og hverju beri að forðast. Biblían segir svo líka að að Guð agar þá sem hann elska (Heb.12.6) enda vill hann einmitt að við lærum það sem er gott og rétt. Hann vill leiðbeina okkur og kenna okkur að ganga rétta veginn. Við þurfum svo að taka við því.
Síðast liðinn sunnudag fengum við að heyra vitnisburði frá fólki sem þráði að segja frá því sem Guð hefur verið að gera í fyrir það. Þar kom margt spennandi fram sem vert er að hlusta á. Síðan talaði gylfi Markússon til okkar og er upptakan frá samkomunni komin inn á netið.
Á fimmtudaginn (29. júlí nk.) hefst svo árlegt mót Hvítasunnumanna sem í ár verður haldið í Stykkishólmi (nánari upplýsingar á www.kotmot.123.is). Samkomuhald hér í Kirkjulækjarkoti mun því færast í Hólminn þessa helgi og eru allir sem hafa tök á hvattir til að kíkja á mótið þar. Dagskrá mótsins er komin inn á vefsíðu Kotmóts. Næsta hefðbundna samkoma í Kirkjulækjarkoti verður bænastund fimmtudaginn 5. ágúst nk.

Skrifað 27.7.2010 kl. 11:33 af Katrínu

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

9.7.2010

Hvað er öfugt við elsku?

Hvað er andheiti við elsku og kærleika? Hatur já, en hvað með sjálfselsku eða sjálfhverfu? Hve oft erum við upptekin af okkur sjálf þegar við ættum að hugsa um aðra? Jesús er fyrirmynd okkar um kærleika og í Biblíunni eru kristnir hvattir til að vera "eftirbreytendur Krists". Það er örugglega erfitt ef maður er upptekinn af sjálfum sér.

Sue Ólafsson talaði til okkar síðast liðinn sunnudag. Hún kom víða við en nefndi meðal annars þetta með að við eigum að líkjast Kristi. Besta leiðin til þess er að ganga til liðs við Jesú, leyfa honum að komast að. Við erum ekkert annað en gruggug jökulá í sjálfum okkur. Það mætti líkja okkur Hvítá. Jesús er tær sem Sogið. Þegar Hvítá og Sogið renna saman verður Ölfusáin til en það er ein kraftmesta á landsins. Þannig er það líka með þá sem eru tilbúnir til að ganga til liðs við Jesú. Með honum í liði fáum við kraft sem er sterkari en nokkuð annað sem til er. Spurningin er bara hvort við erum til. Ert þú til? Ræða Sue liggur inni á upptökusíðunni. Ef þú átt 20 mínútur aflögu, þá eru þær vel varðar í að hlusta á þessa skemmtilegu ræðu.


Fyrir þá sem eru að velta fyrir sér hvað eigi að gera um verslunarmannahelgina má benda á þessa síðu: kotmot.123.is. Þar eru allar upplýsingar um mót Hvítasunnumanna (Kotmót).

Skrifað 9.7.2010 kl. 15:05 af Katrínu

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 175
Gestir í dag: 55
Flettingar í gær: 218
Gestir í gær: 52
Samtals flettingar: 182190
Samtals gestir: 30095
Tölur uppfærðar: 5.9.2010 21:56:26

Þér hlið, lyftið höfðum yðar, hefjið yður, þér öldnu dyr, að konungur dýrðarinnar megi inn ganga.
Hver er þessi konungur dýrðarinnar? Drottinn hersveitanna, hann er konungur dýrðarinnar.
 
Sálmur 24 : 9 - 10

Hvítasunnukirkjan Kirkjulækjarkoti
861 Hvolsvöllur

Vefstjórar: Jarek Dudziak og Katrín M. Eiríksdóttir

Netfang vegna heimasíðu: katrinme (hjá) gmail.com